Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Körfubolti í Grafarvogi – Ofurhelgi í Laugardal

Íshokkí og körfubolti á dagskrá kvöldsins, í Grafarvogi og Laugardalnum.

Útileikjadagur hjá íþróttaliðum Akureyrar, reyndar aðeins tvö þeirra á faraldsfæti í dag. Karlalið Þórs í körfubolta fer í Grafarvoginn og mætir Fjölni og SA Víkingar mæta í Laugardalinn í fyrstu Ofurhelgi vetrarins í Toppdeild karla í íshokkí.

  • Körfubolti: Karlalið Þórs í körfuboltanum hefur ekki enn náð að vinna leik það sem af er tímabilinu, þrjú töp í deildinni og eitt í bikarnum. Þórsarar sækja Fjölni heim í fjórðu umferð 1. deildarinnar í kvöld.
  • Íshokkí: Fyrsta Ofurhelgin af þremur í Toppdeild karla í íshokkí er fram undan. Þetta fyrirkomulag var prófað í fyrra og hefur greinilega tekist það vel að ákveðið var að halda áfram með það. Ofurhelgin felst í því að meistaraflokksliðin þrjú í Toppdeild karla, SA, SR og Fjölnir mætast öll einu sinni á sama stað yfir helgina. Ofurhelgarnar verða þannig einu sinni á vetri í hverri skautahöll. Sú fyrsta fer fram í Skautahöllinni í Laugardal núna um helgina. SA Víkingar, sem unnu eftirminnilegan 6-0 sigur á SR um liðna helgi, spila sína leiki á í kvöld og á morgun. Þeir mæta SR í kvöld og Fjölni á morgun. Reykjavíkurfélögin mætast svo á sunnudag. Liðið sem heldur Ofurhelgina fær hvíldardag á milli, spilar á föstudegi og sunnudegi.

  • Körfubolti
    1. deild karla, 4. umferð
    Dalhús í Grafarvogi kl. 19:15
    Fjölnir - Þór

  • Íshokkí
    Toppdeild karla, Ofurhelgi
    Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
    SR - SA

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45