Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Toppslagur er Haukar mæta í KA-heimilið

Ágúst Elí Björgvinsson freistar þess að verja víti í síðasta heimaleik KA, fjögurra marka sigri á Aftureldingu. Markvörðurinn fór hamförum í sigrinum á FH í Hafnarfirði í vikunni. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Toppslagur Olísdeildar karla í handbolta er á dagskrá í KA-heimilinu í kvöld þegar KA tekur á móti Haukum. Hafnafjarðarliðið hefur unnið átta fyrstu leikina í deildinni og er efst með 16 stig en KA er með 12 stig eins og Valur. Liðin hafa bæði unnið sex leiki og tapað tveimur.

KA gerði góða ferð til Hafnarfjarðar á miðvikudagskvöldið og sigraði FH mjög örugglega, 39:33, og því verður spennandi að sjá hvernig bardaganum í KA-heimilinu lyktar; Haukar unnu FH-inga í nýlegum Hafnarfjarðarslag með einu marki, 35:34

Ágúst Elí Björgvinsson fór hamförum í marki KA á miðvikudaginn gegn sínu gamla félagi – varði 44% þeirra skota sem hann fékk á sig, sem er fádæma tölfræði. Dagur Árni Heimisson hélt uppteknum hætti og raðaði inn mörkum; þau urðu 12 og Bjarni Ófeigur Valdimarsson gerði sjö mörk og gaf jafnmargar stoðsendingar.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 9. umferð
    KA-heimilið kl. 18:30
    KA - Haukar

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45