Fara í efni
Umræðan

Vísindaskólinn aldrei vinsælli – MYNDIR

Mynd: Axel Darri Þórhallsson

Vísindaskóli unga fólksins var haldinn í 10. skipti í síðustu viku í Háskólanum á Akureyri. Aðsóknin var meiri en nokkru sinni fyrr; skólinn er ætlaður börnum 11-13 ára og alls 85 börn voru með að þessu sinni. 

Í Vísindaskólanum kynnast nemendur ýmsum fræðum og taka þemu skólans mið af því sem er að gerast í samfélaginu hverju sinni.

Ungt fólk á aldrinum 11 til 13 ára getur skráð sig í Vísindaskóla unga fólksins og er algengt að börn noti tækifærið til þess að skrá sig þrjú ár í röð, enda eru alltaf ný þemu í boði, segir í tilkynningu í vef Háskólans á Akureyri.

Sigrún Stefánsdóttir hefur verið skólastjóri frá upphafi en henni til aðstoðar er Dana Jónsdóttir.

Sigrún segir að til þess að standa undir þeim fyrirheitum að Vísindaskólinn sé vika fróðleiks og skemmtunar séu kennarar handvaldir til kennslunnar. „Hér er gleðin og fróðleiksþorsti í öndvegi. Við viljum að nemendur læri eitthvað nýtt og ferskt, sem þeir geta síðan miðlað áfram þegar þeir koma í sitt hefðbundna nám í haust,“ segir Sigrún.

Rektor HA, Eyjólfur Guðmundsson, útskrifaði hópinn og var það jafnframt síðasta embættisverk hans sem rektor skólans.

Nánar hér um Vísindakólann á heimasíðu Háskólans á Akureyri

Hin gáttin

Þórhallur Jónsson skrifar
16. september 2025 | kl. 15:00

Samgöngufélagið Þjóðbraut

Jens Garðar Helgason skrifar
16. september 2025 | kl. 11:20

Stöndum með Háskólanum á Akureyri

Jón Bjarnason skrifar
15. september 2025 | kl. 22:00

Sterkt skólasamfélag á Akureyri, sameiginleg ábyrgð og framtíðarsýn

Heimir Örn Árnason skrifar
13. september 2025 | kl. 12:00

Reynslunni ríkari eftir fjár­hags­leg á­föll síðustu ára

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
09. september 2025 | kl. 08:00

Börnin í Móahverfi sem munu þurfa skutl um allan bæ

Páll Pálsson skrifar
02. september 2025 | kl. 16:30