Fara í efni
Umræðan

Reitir munu byggja hjúkrunarheimilið

Fyrirhugað hjúkrunarheimili við Þursaholt. Mynd frá Reitum.

Fasteignafélagið Reitir mun sjá um uppbyggingu hjúkrunarheimilis við Þursaholt á Akureyri. Þar verða 140 hjúkrunarrými og byggingin um 9.100 fermetrar á nokkrum hæðum.

Alls bárust 10 tilboð í verkefnið frá fimm aðilum og var tilboð Reita metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðslýsingar að mati Framkvæmdasýslu - Ríkiseigna, að því er segir í tilkynningu Reita til Kauphallarinnar.

Leigutilboð Reita nemur 5.800 kr. á fermetra sem samsvarar 633 milljónum króna á ári „og er rekstrarávöxtun af framkvæmdinni áætluð um 6% af framkvæmdakostnaði,“ segir í tilkynningu Reita. Gert er ráð fyrir að kostnaður við framkvæmdina verði um 8,9 milljarðar.

Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára um hjúkrunarheimilið þar sem Reitir annast rekstur húsnæðisins en Ríkiseignir fela öðrum rekstur hjúkrunarheimilisins.

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20

Látum Loftbrúna vera

Sindri S. Kristjánsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 13:10

Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
02. nóvember 2026 | kl. 14:10

Félagsheimili eldri borgara á Akureyri

Björn Snæbjörnsson og Karl Erlendsson skrifa
02. nóvember 2026 | kl. 10:30

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00