Víkingar kreistu fram sigur í lokin gegn KA
Fáir bjuggust sennilega við að KA myndi sækja gull í greipar Víkings í viðureign liðanna í efstu deild karla á heimavelli Víkings í kvöld. KA var hins vegar með forystuna stærstan hluta leiksins en Víkingar náðu kreista fram 3:2 sigur í blálokin. Sannarlega svekkjandi fyrir KA að fá ekkert út úr leiknum, miðað við hvernig hann þróaðist.
Reyndar voru það heimamenn sem höfðu mikla yfirburði fyrstu mínútur leiksins og náðu forystunni strax eftir rúmar fjórar mínútur. Aron Elís Þrándarson skallaði þá sendingu Helga Guðjónssonar af krafti niður í markhornið, rétt utan markteigs. Og eflaust bjuggust margir við að mörkunum myndi rigna í kjölfarið.
Hallgrímur Mar betri enginn!
En KA-menn efldust bara við þetta og jöfnuðu leikinn óvænt á 14. mínútu. Birgir Baldvinsson vann boltann af harðfylgi á vinstri kantinum og kom honum á Hallgrím Mar Steingrímsson. Hallgrímur og Danijel Dejan Djuric tóku létt þríhyrningsspil við vítateigshornið og Hallgrímur lét síðan vaða á markið. Boltinn hafði viðkomu í Víkingnum Tarik Ibrahimagic og sveif yfir í fjærhornið á Víkingsmarkinu.
Stuttu síðar varði Steinþór Már Auðunsson í marki KA vel skot frá Elíasi Má Ómarssyni frá vítateig og Víkingar náðu ekki að gera sér mat úr frákastinu. Í kjölfarið á því, á 23. mínútu, skoraði Hallgrímur Mar aftur og náði forystunni fyrir KA. Hallgrímur fékk boltann utarlega í vítateignum vinstra megin, hótaði skoti nokkrum sinnum og fíflaði varnarmenn Víkings áður en hann setti boltann hárnákvæmt niðri í fjærhornið á Víkingsmarkinu.
Víkingar virtust slegnir út af laginu, enda búnir að vinna 12 leiki í röð í deildinni og alls ekki vanir því að lenda undir í leikjum sínum. Þeir voru áfram meira með boltann eftir þetta en gekk illa að skapa sér hættuleg markfæri. KA-liðið varðist vel og virkaði heilsteyptara en oft áður í undanförnum leikjum. Steinþór Már þurfti þó að taka á honum stóra sínum snemma í síðari hálfleik, þegar hann var snöggur niður og náði að koma vinstri lúkunni í boltann eftir að skot Gylfa Þórs Sigurðssonar stefndi í markhornið. Sóknarþungi Víkings jókst enn þegar á leið og Steinþór varði aftur vel á 66. mínútu, frá Aroni Elís úr góðu færi.

Oliver Heiðarsson meiddist undir lok leiksins í kvöld og Hallgríms þjálfari KA óttast að hann verði lengi frá. Mynd: Ármann Hinrik
Sigurmark Víkings seint í uppbótartíma
Á 81. mínútu tókst Víkingum loks að jafna. Óskar Borgþórsson átti eitraða sendingu inn í vítateig KA, þar sem Aron Elís kom á ferðinni og stýrði boltanum í hornið frá markteig. Og kannski var hin margumtalaða meistaraheppni í liði með Víkingum á fjórðu mínútu uppbótartíma þegar Óskar æddi inn í vítateig KA, nálægt endalínu, og Kári Gautason braut á honum. Líklega andartaki of seinn í boltann og vítaspyrna dæmd. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sigurmark Víkings af miklu öryggi úr spyrnunni.
KA fékk síðasta færi leiksins í blálokin; klafs í vítateig Víkings eftir langt innkast og Birgir Baldvinsson náði að pota í boltann á markteig en Ögmundur Kristinsson í markinu náði að verja.
Oliver alvarlega meiddur?
Oliver Heiðarsson fór meiddur af leikvelli hjá KA í lok uppbótartímans og í viðtali á fotbolti.net í kvöld sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA að meiðslin væru líklega alvarleg og að Oliver yrði lengi frá. „Ég held að hann hafi brotnað áðan. Mér sýnist hann hafa brotið sama bein og hann braut fyrir nokkrum árum, metatarsus, en ég er ekki alveg viss. Hann er því miður frá í langan tíma,“ sagði Hallgrímur í um meiðslin í viðtalinu við fotbolti.net.
Sannarlega svekkjandi tap hjá KA, eftir að hafa staðið uppi í hárinu á besta liði landsins lengst af í þessum leik. Tapið er það sjötta í röð hjá KA og liðið situr sem fastast í 10. sætinu. Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn ÍA sunnudaginn 12. júlí.
Við ætlum að leggja okkar af mörkum
Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn
Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll
Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli