Lygilegt sex marka jafntefli Þórs og KR
Þór og KR gerðu 3:3 jafntefli í ótrúlegum leik í Bestu deildinni í knattspyrnu í dag. Þórsarar voru komnir í 3:0 eftir tæpar þrettán mínútur, KR-ingar minnkuðu muninn áður en fyrri hálfleik lauk og bættu tveimur mörkum við í seinni hálfleik.
Ágúst Eðvald Hlynsson gerði fyrsta markið þegar 65 sekúndur voru liðnar þegar hann nýtti sér ótrúleg mistök í vörn KR, Einar Freyr Halldórsson gerði annað markið beint úr hornspyrnu þegar tæpar 10 mín. voru búnar og Aron Birkir Stefánsson markvörður Þórs sýndi stórbrotin tilþrif þegar hann gerði þriðja markið – mark sumarsins í Bestu deildinni til þessa. Aron skoraði beint úr aukaspyrnu af miðjum eigin vallarhelmingi; af um það bil 75 metra færi.
Þrátt fyrir að leika gegn mjög sterkum vindi í fyrri hálfleik héldu KR-ingar sig við það að markvörður liðsins kæmi langt út á völlinn til að geta tekið þátt í spilinu ef með þyrfti. Þegar Þórsarar fengu dæmda aukaspyrnu á 13. mín. á miðjum eigin vallarhelmingi sá Aron Birkir sér leik á borði þegar hann áttaði sig á því að starfsbróðir hans hjá KR, Sigurpáll Sören Ingólfsson, var langt frá markinu; tók aukaspyrnuna og skoraði með stórglæsilegu skoti.
Með stiginu fór Þór upp í næst neðsta sæti, er nú stigi fyrir ofan FH sem fær Stjörnuna í heimsókn á morgun.
Nánar síðar
Við ætlum að leggja okkar af mörkum
Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn
Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll
Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli