Færðu Gesti og Erlu sex milljónir króna
Fulltrúar Þórs og Macron færðu í gær hjónunum Gesti Arasyni og Erlu Bryndísi Jóhannsdóttur sex milljónir króna í styrk. Féð safnaðist með sölu á sérstakri treyju, Gedda treyju, sem hönnuð var og seld til styrktar fjölskyldunni eftir að Gestur greindist með bráðahvítblæði í vor. Hann fór strax í meðferð á Landspítalanum og þau hjón eru þar enn.
Gestur hefur verið liðsstjóri knattspyrnuliðs Þórs síðustu ár og ötull sjálfboðaliði í félaginu að ýmsu öðru leyti.
Síðustu vikur hafa sjálfboðaliðar unnið að því hörðum höndum að merkja treyjurnar hjá Macron í Reykjavík. Þórsarar seldu hvorki fleiri né færri en um 900 treyjur, merktar FYRIR GEDDA, og verða þær afhentar í Hamri, félagsheimili Þórs, frá og með deginum í dag.
Á myndinni, sem tekin var á Landspítalanum, eru frá vinstri: Eva Dögg Sæmundsdóttir verslunarstjóri Macron, Gestur Arason, Erla Bryndís Jóhannsdóttir og Þórsarinn Jason Orri Geirsson, sem hannaði treyjuna.

Við ætlum að leggja okkar af mörkum
Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn
Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll
Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli