Fara í efni
Umræðan

Stórbrotið mark Arons – MYNDBAND

Aron Birkir Stefánsson spyrnir boltanum fram völlinn í leiknum í dag. Hann skoraði stórkostlegt mark þegar hann kom Þór í 3:0 eftir tæplega 13 mínútna leik! Mynd: Skapti Hallgrímsson

Aron Birkir Stefánsson markvörður og fyrirliði Þórs skoraði stórbrotið mark gegn KR í Bestu deildinni í knattspyrnu í dag, með skoti beint úr aukaspyrnu af miðjum vallarhelmingi Þórs eins og nefnt var í fyrri frétt akureyri.net. Tilþrif sem þessi sjást nánast aldrei á knattspyrnuvelli.

Aron Birkir gerði þetta frábæra mark á 13. mínútu leiksins og það hljómar ekki síður ótrúlegt að hann breytti stöðunni þá í 3:0! Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði strax eftir 65 sekúndur og Einar Freyr Halldórsson gerði annað mark Þórs á 10. mínútu.

  • Sjón er sögu ríkari – í frétt Vísis má sjá mark Arons Birkis úr útsendingu Sýnar Sport frá leiknum. Smellið HÉR til að horfa.

Liðsfélagar Arons Birkis fögnuðu honum að vonum innilega eftir markið. Á mynd Sævars Geirs Sigurjónssonar hér að neðan faðmar Bjarni Guðjón Brynjólfsson markvörðinn að sér og þeir Einar Freyr Halldórsson og Ragnar Óli Ragnarsson nálgast hann, brosandi út að eyrum eins og gefur að skilja.

Drífum í að stytta hringveginn

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
02. júlí 2026 | kl. 14:30

Við ætlum að leggja okkar af mörkum

Óðinn Svan Óðinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifa
25. júní 2026 | kl. 17:00

Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn

Björn Snæbjörnsson skrifar
25. júní 2026 | kl. 10:45

Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
23. júní 2026 | kl. 11:00

Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli

Sindri S. Kristjánsson skrifar
20. júní 2026 | kl. 09:00

Fullveldi

Helgi Jónsson skrifar
18. júní 2026 | kl. 16:30