Verndum græn svæði – engin óhófleg þétting byggðar
Á vef Akureyrarbæjar er lögð áhersla á að varðveita beri þær frábæru náttúruperlur sem umlykja bæinn. Það er mikilvægt markmið sem við eigum öll að standa vörð um. En, við viljum ekki bara einblína á þessi stærri og þekktari svæði, við þurfum einnig að halda í og byggja upp önnur græn svæði innan bæjarins. Svæði sem mynda nærumhverfi fólks í daglegu lífi og hafa bein áhrif á líðan þess og heilsu.
Græn svæði innan íbúðahverfa skipta miklu máli. Þau gera hverfin hlý og falleg, þau skapa skjól og tækifæri til útivistar og samveru. Það eykur lífsgæði fólks að hafa græn svæði í göngufæri frá heimili sínu, þar sem hægt er að fara út í stutta göngu, setjast á bekk, leyfa börnum að leika sér eða einfaldlega njóta kyrrðar og gróðurs.
Það er ekki sjálfgefið að allir íbúar bæjarins geti farið lengri leiðir til að njóta náttúrunnar. Þess vegna viljum við í Miðflokknum að stutt sé í græn svæði fyrir sem flesta íbúa þannig að þeir sem ekki hafa kost á að koma sér lengri leiðir á þau svæði sem eru í útjaðri bæjarins hafi möguleika á að njóta gróðurs og náttúru í nærumhverfi sínu.
Vel hönnuð falleg græn svæði innan hverfa gera þau eftirsóknarverðari til búsetu. Um leið auka þau samkeppnishæfni bæjarins og sterk tenging við náttúruna verður hluti af ímynd hans. Þannig getum við laðað að fleira fjölskyldufólk, eldri borgara og þau sem vilja búa í heilnæmu og fallegu umhverfi.
Þegar hafa verið byggðir upp frábærir göngu- og hjólastígar sem tengja saman hverfi bæjarsins. Þar má gera enn betur, t.d. með merkingum til aðskilnaðar á milli göngu- og hjólafólks. Þá langar okkur að sjá sett upp æfingatæki á grænum svæðum meðfram þessum stígum þar sem fólk getur staðnæmst og gripið í alhliða styrktaræfingar. Þegar „náttúran“ er rétt fyrir utan dyrnar eykur það líkurnar á reglulegri hreyfingu og hvetur þannig fólk til heilbrigðari lífstíls sem hefur forvarnargildi.
Því stærri sem Akureyri verður, þeim mun mikilvægara verður að standa vörð um grænu svæðin. Við viljum því ekki frekari þéttingu byggðar umfram það sem þegar hefur verið ákveðið. Við viljum sjá falleg, vel skipulögð græn svæði með leik- og æfingatækjum, trjám, runnum og blómum innan um íbúðabyggðirnar okkar. Svæði sem bæta lífsgæði, efla heilsu og gera Akureyri að enn betri bæ til að búa í.
Sigurbjörg Níelsdóttir starfar sem skrifstofustjóri, er menntuð viðskipta- og garðyrkjufræðingur og skipar 6. sæti á lista Miðflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 16. maí
Um Hlíðarskóla og jafnræði landshluta
Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð?
Nokkur orð um þjónustu Akureyrarbæjar við eldra fólk
Sorgin þegar fólk fellur á milli kerfa