Verður Hólaskóli lagður niður og Hólastaður seldur?

Mynd: Skapti Hallgrímsson
Frumvarpið felur í sér að Hólaskóli á Hólum í Hjaltadal verði sviptur sjálfstæði sínu og færður undir Háskóla Íslands.
Samhliða er starfseminnni að stóru leyti ætlað að fara frá Hólastað á Sauðárkrók eða til Reykjavíkur.
Þá er ráðgert að hin sögufrægu skólahús – teiknuð af þeim Guðjóni Samúelssyni og Rögnvaldi Ólafssyni - er hafa hýst starfsemi skólans í meir en heila öld - verði framseld til einkaaðila og staðarhald er í uppnámi.
Þetta er efni frumvarps sem nú liggur fyrir Alþingi og fer undarlega hljótt og kemur óvænt eins og í bakið á velunnurum Hóla.
Bændaskólinn á Hólum var stofnaður 1882.
Skólahald á Hólum á sér mun lengri sögu, allt til þess að fyrsti biskup Jón Ögmundsson stofnaði þar latínuskóla laust eftir 1100.
Í gegnum aldirnar hafa margir helstu andans menn þjóðarinnar lært og starfað á Hólum. Dómkirkjan, Turninn og Staðarhúsin draga fram hina miklu helgi og sögu Hóla.
Sumarið 1981 var ég skipaður skólastjóri á Hólum.
Skólinn var þá langt niðri, byggingar og staðurinn í vanhirðu.
En ég fann strax að frá fyrsta degi hafði ég sterkt, öflugt og fórnfúst bakland. Skólanefnd skipuð fulltrúum frá öllum sýslum Hólastiftis lét mjög til sín taka.
Hólaskóli reis upp undir nýjum áherslum – hrossarækt og reiðmennsku, ferðaþjónustu og fiskeldi. Og ekki síst með endurreisn Biskupsstóls á Hólum sem og að verða vinsæll ferðamannastaður.
Aftur var gestkvæmt Heima á Hólum.
Allar þessar áherslur hafa gengið vel í starfi skólans. Borist hefur nægur fjöldi umsókna – eftir því sem ég kemst næst. Biskupssetur á Hólum með góðu starfi.
Heima á Hólum hefur eitt stutt annað sem heild.

Mynd: Skapti Hallgrímsson
Sál skólans og Hólastaðar - Helgidómur þjóðarinnar
Frá stofnun Bændaskólans á Hólum 1882 hefur Hólastaður – saga hans og helgi – verið sál skólans.
Í minni 20 ára skólastjóratíð fór ég með öll staðarforráð og jarðarábúð líkt og fyrri skólastjórar höfðu gert.
Mín skoðun er að binda hefði átt í lög að æðsti yfirmaður skólans væri skyldugur að búa á Hólum og sitja staðinn sem staðarhaldari.
Því miður hefur Staðurinn og skólinn hins vegar verið aðskilin frá hvor öðrum fyrir nokkru.
Skólinn var fluttur frá Landbúnaðarráðuneyti til Menntamálráðuneytis, sjálf jörðin Hólar svipt lögbýlisrétti sínum.
Forræði og ábyrgð á Hólastað er skilin eftir munaðarlaus.
Skólanum var meinað að reka kaffistofu eða gestamóttöku.
Vígslubiskup hefur gert sitt við Dómkirkjuna.
Óljóst er hver fer með staðarforráð og ábyrgð en skólahús og umhirða hefur drabbast niður.
Sú staðreynd er öllum augsýnileg er ganga um staðinn.
Hver verður framtíð Hóla í Hjaltadal?
Ég óttast að sú gjörð að gera Hólaskóla að annexíu eða deild frá Háskóla Íslands og aukinheldur að flytja megin starfsemi skólans af staðnum muni fela í sér endalok hans.
Hólaskóli er og verður að vera sjálfstæður með höfuðstöð og starf heima á Hólum. Annars er hann ekki Hólaskóli.
Það er sorglegt að horfa á staðarhús Hóla í Hjaltadal drabbast niður og verða síðan seldar á uppboði til einkaaðila líkt og um þrotabú sé ræða.
Þjóðin glati þannig hinum forna og helga höfuðstað.
Ríkið - þjóðin ber ábyrgð á Hólastað
Þó að ýmsum finnist hringla tómlega í ríkiskassanum og mörg verkefni brýn þá getur ríkissjóður Íslands ekki verið svo aumur eða vesæll að hann geti ekki skift um nokkrar járnplötur, sett á fáein stormjárn, lagað nokkrar þakrennur, stöðvað leka, málað, hreinsað hlöð og ásýnd á þessa fornhelga stað.
Að ríkissjóður geti hið minnsta sýnt hinum merku húsum staðarins fulla virðingu, sem ekki hafa séð málningu í bráðum hálfa öld.
Norðlendingar stóðu saman um uppbyggingu Hólastaðar og Hólaskóla.
Nú er landsmót hestamanna á Hólum í Hjaltadal í sumar.
Ég má ekki til þess að hugsa fyrir hönd Hólastaðar að ekki verði búið að mála og gera upp skólahúsin og staðarásýndina.
Þar sé einhver myndugur forsjáraðili er geti með stolti boðið:
„Velkomin Heim að Hólum“ og opnað húsakynni sín á hlaði Hóla í Hjaltadal.
Jón Bjarnason er fyrrverandi ráðherra, þingmaður og skólastjóri á Hólum í Hjaltadal
„Akureyrar ákvæðið“ um lagningu raflína í þéttbýli
Hreint ekki eins og atvinnuviðtal
Tjaldsvæðisreiturinn auglýstur „til sölu“
Gott að eldast