Veðurviðvörun vegna norðanstórhríðar
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og appelsínugular veðurviðvaranir fyrir norðanvert landið og hálendið, vegna mikillar snjókomu og skafrennings. Gul viðvörun tekur gildi fyrir Norðurland eystra kl. 12 á hádegi í dag, föstudag, breytist síðan í appelsínugula viðvörun frá kl. 15, gul tekur aftur gildi kl. 2 aðfararnótt laugardags en veðrið á að vera gengið niður kl. 6 í fyrramálið.
Veðurspá gerir ráð fyrir vestan og norðvestan 15-23 m/s og snjókomu eða skafrenningi norðanlands frá kl. 14 í dag. Búast má við takmörkuðu skyggni og erfiðri færð, einkum á Tröllaskaga og fjallvegum. Ökumenn eru hvattir til að fylgjast með veðurspá og færð áður en lagt er af stað.
Appelsínugul veðurviðvörun fyrir Norðurland eystra vegna norðanstórhríðar tekur gildi kl. 15 í dag, nokkrum klukkustundum fyrr en tilkynnt var í gær: „Norðan 18-25 m/s og talsverð snjókoma með skafrenningi, einkum á fjallvegum og á Tröllaskaga. Ferðalög ekki ráðlögð,“ segir í viðvörun Veðurstofunnar fyrir Norðurland eystra.
- HVAÐ TÁKNAR GUL VIÐVÖRUN?
Á vef Veðurstofunnar segir: Spáð er veðri sem getur haft talsverð samfélagsleg áhrif og valdið töfum, slysum eða tjóni ef aðgát er ekki höfð. Áhrif á innviði, þjónustu og samgöngur á landi geta orðið talsverð en eru líkleg til að verða staðbundin. Slík veður eru nokkuð algeng og krefjast árvekni við skipulagningu þjónustu, atburða og ferða. - HVAÐ TÁKNAR APPELSÍNUGUL VIÐVÖRUN?
Á vef Veðurstofunnar segir: Spáð er veðri sem getur valdið miklum samfélagslegum áhrifum. Veðrið getur valdið tjóni og/eða slysum og ógnar mögulega lífi ef aðgát er ekki höfð. Áhrif á þjónustu, innviði og samgöngur á landi og í lofti geta orðið miklar. Veður sem þessi verða nokkrum sinnum á ári og krefjast sérstakra viðbragða og árvekni við skipulagningu þjónustu og í daglegum athöfnum almennings.
Icelandair ætti að horfa norður
Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara
Framtíð, atvinna og velferð í verki
Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar