Fara í efni
Umræðan

Tríó Öræfi og Arnaldur í Akureyrarkirkju

Tríó Öræfi ásamt Arnaldi Arnarsyni gítarleikara koma fram á Sumartónleikum í Akureyrarkirkju í dag kl. 17.00. Þetta eru þriðju tónleikarnir af fernum í þessari gamalgrónu tónleikaröð sem haldin er í 40. skipti á þessu sumri.
 
Tríó Öræfi er skipað Sóleyju Þrastardóttur þverflautuleikara, Þórunni Harðardóttur víóluleikara og Ásdísi Arnardóttur sellóleikara. Ásamt Arnaldi Arnarsyni gítarleikara flytur tríóið verk eftir Josef Kreuzer, Franz Schubert/W. Matiegka og Nicolo Paganini. Auk þess frumflytja fjórmenningarnir nýtt verk eftir Oliver Kentish, sem pantað var í tilefni 40 ára afmælis Sumartónleika í Akureyrarkirkju.
 

„Hljóðfærasamsetningin er óvenjuleg, og gefst ekki alloft tækifæri til að heyra samspil þessara fjögurra hljóðfæra. Í tónverkunum njóta raddir hljóðfæranna sín sérlega vel og gefst hér því kjörið tækifæri að heyra tónlist sem ekki er á boðstólum dag hvern,“ segir í tilkynningu frá Sumartónleikum.

  • Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00 sem fyrr segir. Aðgangur er ókeypis en tekið á er móti frjálsum framlögum.

Menningarsjóður Akureyrarbæjar, sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Hérðassjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis styrkja tónleikaröðina.

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15