Fara í efni
Umræðan

Þórarinn Eldjárn les ljóð á Skáld hóteli

Þórarinn Eldjárn er gestur Skáld hótels á Akureyrarvöku og býður gestum á tvær upplestrarstundir í dag, laugardag. 
 
  • Kl. 13:00 – Upplestur fyrir börn
    „Þórarinn býður yngri gestum í notalega og skemmtilega upplestrarstund þar sem orð, húmor og ímyndunarafl fá að njóta sín,“ segir í kynningu á viðburðinum.
  • Kl. 16:30 – Upplestur fyrir fullorðna
    „Síðar um daginn tekur við upplestur fyrir fullorðna þar sem Þórarinn les úr verkum sínum.“

„Bókmenntastemningin nær yfir alla helgina á Skáld. Gestir geta meðal annars notið ljóða Þórarins með morgunverðinum og tekið með sér orð úr verkum hans heim,“ segir í kynningu. Ljóðið er sannarlega í hávegum haft á þessu nýja, stórglæsilega hóteli við Hafnarstræti; ástæða er til að hvetja alla sem vettlingi geta valdið að líta þar við og upplifa stemninguna.

Til gamans má geta þess að á veitingastað hótelsins, Abba-labba-lá, verða þrír sérstakir kokteilar á Happy hour-verði alla helgina, nefndir eftir ljóðum Þórarins: Startari, Núllþol og Lag. Einnig verður boðið upp á sérstakan þriggja rétta Akureyrarvöku-matseðil á Abba-labba-lá.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15