Fara í efni
Umræðan

Taka þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni

Akureyrarklíníkin er einn þátttakenda í alþjóðlegu rannsóknarverkefni um ME-sjúkdóminn sem hlotið hefur styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, Horizon Europe. Þátttaka Akureyrarklíníkurinnar er í samstarfi við Landspítalann. 

„Verkefnið markar mikilvæg tímamót í evrópsku samstarfi um lífvísindarannsóknir á ME og sameinar vísindafólk, heilbrigðisstarfsfólk og fulltrúa sjúklinga frá meira en tuttugu rannsóknastofnunum í Evrópu og Kanada,“ segir meðal annars í frétt á vef Sjúkrahússins á Akureyri. Styrkveitingin er talin marka tímamót fyrir rannsóknir á ME þar sem verkefnið hlaut brautargengi í gegnum strangt alþjóðlegt faglegt matsferli og staðfestir mikilvægi rannsóknasviðsins innan evrópsks vísindasamstarfs, 

Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, sérfræðingur í ofnæmis- og ónæmislækningum, leiðir verkefnið fyrir hönd Landspítala í samstarfi við Friðbjörn Sigurðsson hjá Akureyrarklíníkinni.

Markmiðið með verkefninu er að auka skilning á líffræðilegum orsökum ME, þróa áreiðanleg lífmerki sem styðja við greiningu sjúkdómsins og leggja grunn að markvissari meðferð í framtíðinni. Mikil áhersla er lögð á virka aðkomu sjúklinga og hagsmunasamtaka þeirra að verkefninu. Reynsla sjúklinga með ME verður nýtt við þróun rannsóknaraðferða, flokkun sjúklingahópa og mótun tillagna sem geta nýst bæði heilbrigðiskerfum og stefnumótun. Stefnt verður að því að fá 120 sjúklinga með ME og 30 heilbrigða einstaklinga á Íslandi til að taka þátt.

  • Hvað er ME?
    ME er alvarlegur og langvinnur sjúkdómur sem getur haft mjög hamlandi áhrif á daglegt líf. Enn sem komið er byggist greining sjúkdómsins eingöngu á klínísku mati, sem verður oft til þess að langur tími líður þar til rétt greining fæst. Það getur haft veruleg áhrif á lífsgæði sjúklinga með ME.
  • Akureyrarklíníkin
    Þjónustumiðstöð fyrir einstaklinga með ME-sjúkdóminn eða langvarandi einkenni covid.

Nánar er fjallað um verkefnið í frétt á vef Sjúkrahússins - sjá hér.

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00

Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
02. júlí 2026 | kl. 20:45

Drífum í að stytta hringveginn

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
02. júlí 2026 | kl. 14:30

Við ætlum að leggja okkar af mörkum

Óðinn Svan Óðinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifa
25. júní 2026 | kl. 17:00

Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn

Björn Snæbjörnsson skrifar
25. júní 2026 | kl. 10:45

Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
23. júní 2026 | kl. 11:00