Fara í efni
Umræðan

Starfshópur skoðaði aðstæður í Kristnesi

Starfshópur, sem heilbrigðisráðuneytið hefur skipað til að vinna að framtíðarsýn fyrir fasteignir Kristnesspítala, skoðaði aðstæður á staðnum í vikunni skv. heimildum akureyri.net en ekkert liggur fyrir um framhaldið. Hópurinn notaði tækifærið til þess arna í tengslum við fyrstu skóflustungu að nýbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri á fimmtudaginn og undirritun samnings um jarðvegsvinnu.

Í starfshópnum eru fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna og Sjúkrahússins á Akureyri 

Eftir að ákveðið var í vikunni að flytja alla núverandi starfsemi SAk í Kristnesi til Akureyrar, vegna rakaskemmda og myglu, lék akureyri.net forvitni á að vita hvort ríkið – eigandi húsnæðisins – hyggist ráðast í að laga húsakostinn í Kristnesi þannig að hægt verði að hefja endurhæfingarþjónustu þar á ný.

Í skriflegu svari ráðuneytisins segir: „Engar framkvæmdir standa yfir á Kristnesspítala um þessar mundir. Verulegra úrbóta er þörf til að koma húsnæðinu í fullnægjandi og heilnæmt ástand og er ekki talið tímabært að ráðast í slíkar framkvæmdir fyrr en niðurstöður liggja fyrir um framtíðarnýtingu húsnæðisins og framtíðarskipan starfseminnar.“

  • Frétt akureyri.net í vikunni:

Öll starfsemi SAk flutt frá Kristnesi

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30