Fara í efni
Umræðan

Nýr Landspítali upplýsir nágranna SAk

Mynd af vef Nýs Landspítala ohf. Hér sést yfir núverandi bílastæði þar sem nýbyggingin mun rísa, en fjær fyrir miðri mynd eru nú að hefjast framkvæmdir við ný bílastæði. Sjá einnig í mynd inni í fréttinni.

„Framkvæmdasvæðið verður girt af og komið verður upp þvottastöð fyrir vinnubíla til þess að tryggja að óhreinindi berist ekki út á götur.“ Þetta er á meðal þess sem stendur í litlum bæklingi sem dreift hefur verið á heimili í nágrenni Sjúkrahússins á Akureyri í tilefni af því að nú eru að hefjast framkvæmdir á lóð sjúkrahússins vegna stækkunar þess.

Það er Nýr Landspítali ohf. sem stýrir framkvæmdum við byggingu nýrrar legudeildar við sjúkrahúsið. Fyrirtækið hefur látið útbúa lítinn bækling til upplýsingar fyrir nágranna. Fram kemur í bæklingnum að lögð verði áhersla á að lágmarka áhrif framkvæmdanna á nærliggjandi íbúa og starfsemi. Framkvæmdir muni taka mið af því að viðkvæm starfsemi er á sjúkrahúsinu og að ekki megi vinna hávaðasamar framkvæmdir á borð við múrbrot og fleygun nema á virkum dögum á tímanum kl. 8-18. 

Á þessari teikningu má sjá hvar nýju bílastæðin munu verða, efst til vinstri, en þar eru hafnar jarðvinnuframkvæmdir. Mynd: Nýr Landspítali ohf.

Puntkar úr bæklingnum:

  • Jarðvinnuframkvæmdir við ný bílastæði milli Búðatraðar og Þórunnarstrætis eru að hefjast.
  • Í framhaldi af þeim framkvæmdum verður hafist handa við jarðvinnu í grunni vegna bygginar 13.600 fermetra legudeildarbyggingar.
  • Nýbyggingin tengist núverandi sjúkrahúsi og mun rúma skurðlækningadeild (36 stofur), lyflækningadeild (36 stofur) og geðdeild (12 sjúkrastofur), ásamt tveimur öryggiseiningum fyrir geðgjörgæslu, stoðrýmum og dag- og göngudeild geðdeildar.
  • Nýbyggingin verður staðsett sunnan við núverandi byggingar, og gerðar minniháttar breytingar á núverandi húsnæði vegna tengingar við nýbygginguna.
  • Nýbyggingin mun taka yfir núverandi bílastæði á lóðinni og verða framtíðarbílastæði því á öðrum stað, ásamt því að þeim verður fjölgað miðað við aukið byggingarmagn á lóðinni.

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30

Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 11:30

Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB

Hólmgeir Karlsson skrifar
27. júlí 2026 | kl. 06:00

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36