Fara í efni
Umræðan

Sunna Hlín vill áfram leiða lista Framsóknar

Sunna Hlín Jóhannesdóttir, oddviti Framsóknar á Akureyri, hefur ákveðið að gefa aftur kost á sér í efsta sæti lista flokksins fyrir kosningar til bæjarstjórnar í vor. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Sunna Hlín sendi frá sér í dag.
 
Yfirlýsingin er svohljóðadi:
 
  • Að vel ígrunduðu máli hef ég ákveðið að gefa aftur kost á mér til að leiða lista Framsóknar á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum í vor.
  • Ég hef á einn eða annan hátt komið að sveitarstjórnarmálum í 12 ár og ég finn að enn eru málefni sem á mér brenna og ég vil beita mér fyrir af meiri krafti. Ég vil áfram leggja sérstaka áherslu á húsnæðismál, málefni barna og ungmenna, vaxandi hóp eldri borgara og síðast en ekki síst atvinnumál.
  • Við þurfum að horfa markvisst til framtíðar og byggja upp samkeppnishæft samfélag með fjölbreyttum atvinnutækifærum, góðum skólum, góðri aðstöðu til útivistar og íþróttaiðkunar og skapa skemmtilegt mannlíf.
  • Eins þurfum við sem kjörnir fulltrúar landsbyggðanna að berjast fyrir okkar, standa vörð um öfluga heilbrigðisþjónustu, öruggar samgöngur, uppbyggingu skóla og hjúkrunarheimila, millilandaflug og jöfn tækifæri í atvinnulífi.
Ég hlakka til samtals við bæjarbúa um framtíð Akureyrarbæjar. Það eru spennandi tímar framundan

Gott að eldast

Kristín Áslaug Guðmundsdóttir skrifar
19. janúar 2026 | kl. 08:00

Hafirðu ekkert gott að segja er betra að þegja!

Hlín Bolladóttir skrifar
16. janúar 2026 | kl. 11:25

Samstaða í ferðaþjónustu aldrei mikilvægari

Halldór Óli Kjartansson skrifar
13. janúar 2026 | kl. 06:00

Ríkisrekinn byggðahalli

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar
12. janúar 2026 | kl. 13:00

35% aukning í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll

Ásthildur Sturludóttir skrifar
09. janúar 2026 | kl. 17:45

Akureyrarflugvöllur - Brú milli Norðurlands og umheimsins

Sigrún Björk Jakobsdóttir skrifar
07. janúar 2026 | kl. 11:45