Fara í efni
Umræðan

Spurt er: Er hægt að gera meira fyrir atvinnulífið?

Já, það er nauðsynlegt að gera meira og gera það hraðar. Það er stundum allt í lagi að bíða eftir góðum hlutum en það er betra setja sér markmið og sækja fram.

Þurfum við að stækka atvinnulífið? Já.

Við viljum að atvinnulífið sé eins fjölbreytt og það getur verið. Ástæðan er einföld, hér eiga ða vera næg tækifæri fyrir alla. Við þurfum þess vegna að markaðssetja styrkleika sveitarfélagsins, til þess að sækja hingað fólk, fyrirtæki og fjárfestingar sem geta styrkt svæðið. Til þess þurfum við líka að átta okkur á því hvað vantar í bæinn (innskot: aukið verk- og tækninám) og hvar vöxtur getur orðið.

Bæjarfélag sem vex ekki og þróast, það staðnar.

Snýst þetta þá bara um vöxt? Nei.

Vöxtur er ágætur í sjálfu sér en hann er samt til lítils ef hann bætir ekki kjör bæjarbúa. Þess vegna eigum við að skipuleggja okkur, búa til framtíðarsýn og vinna eftir henni. Ef markmiðin eru skýr þá er hægt að tryggja að vöxtur skili sér í betri lífsgæðum.

En er nóg að hugsa um nýjabrumið? Nei.

Það er ekki síður mikilvægt að halda í rótgróin fyrirtæki. Það eru rótgrónu fyrirtækin okkar sem þekkja best mannauðinn býr hérna og tækifærin sem eru nú þegar til staðar. Ávinningurinn verður enginn ef við gleymum þeim. Þess vegna verður sveitarfélagið að efla samstarf sitt við fyrirtækin. Við verðum að skilja þarfir atvinnulífsins og berjast fyrir sameiginlegum hagsmunum okkar.

Er eitthvað fleira sem við þurfum að hugsa um? Já.

Við þurfum líka að hugsa um hvernig fyrirtækin okkar geta þróast, vaxið og staðið að nýsköpun. Við þurfum að hjálpa þeim að efla sinn mannauð, við þurfum að fjárfesta í innviðum og við verðum að gera bæinn aðlaðandi fyrir áframhaldandi starfsemi.

Eitthvað fleira? Já.

XB. Fyrir bæ sem vex af skynsemi.

Gunnar Már Gunnarsson er bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri.

Hlíðarfjall verði hjarta vetraríþrótta á Íslandi

Óðinn Svan Óðinsson, Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Preben Jón Pétursson skrifa
26. apríl 2026 | kl. 14:45

Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum

Sigurjón Þórðarson skrifar
26. apríl 2026 | kl. 14:30

Lífsgæði fyrir fólkið sem lagði grunninn

Óðinn Svan Óðinsson skrifar
25. apríl 2026 | kl. 20:40

Akureyri – Miklu meira en bara fallegur bær

Sigtryggur Ellertsson skrifar
25. apríl 2026 | kl. 20:30

Að verða Akureyringur

Zane Brikovska skrifar
25. apríl 2026 | kl. 20:00

Þarf kosningaskrifstofu til að eiga samtal?

Frambjóðendur Viðreisnar á Akureyri skrifar
24. apríl 2026 | kl. 19:00