Sindri Kristjánsson nýr oddviti Samfylkingar
Sindri S. Kristjánsson, skrifstofustjóri, er nýr oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri. Framboðslisti flokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi í hádeginu í dag.
„Það er mér ofboðslegur heiður að hljóta traust félaga minna í Samfylkingunni á Akureyri til að leiða lista framboðsins í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Listinn er ótrúlega öflugur, bæði fjölbreyttur en traustur í senn,“ segir Sindri í tilkynningu frá Samfylkingunni. Hann er varabæjarfulltrúi yfirstandandi kjörtímabili.
„Með þessum lista sendum við skýr skilaboð til bæjarbúa. Við ætlum að setja menntamál og velferðarmál rækilega á oddinn ásamt að ungum Akureyringum er treyst til ábyrgðar og verka. Verkefnið framundan er stórt en það er jafnframt spennandi og skemmtilegt. Jafnaðarfólk á Akureyri er mætt til leiks,“ segir Sindri.
„Hilda Jana Gísladóttir, sem var oddviti flokksins í síðustu kosningum og bæjarfulltrúi framboðsins á líðandi kjörtímabili, sat í uppstillingarnefnd sem lagði fram tillögu að lista. Á fundinum voru Hildu þökkuð afar vel unnin störf sl. átta ár í bæjarstjórn Akureyrar,“ segir í tilkynningunni.

Sindri Kristjánsson
Listinn í heild sinni:
1. Sindri S. Kristjánsson, skrifstofustjóri og varabæjarfulltrúi
2. Hanna Dóra Markúsdóttir, grunnskólakennari
3. Sigrún Steinarsdóttir, stofnandi Matargjafir Akureyri og nágrenni
4. Jóhannes Már Pétursson, háskólanemi
5. Zane Brikovska, starfsmaður á Bjargey meðferðarheimili
6. Baldur Sverrisson, framhaldsskólakennari
7. Elsa María Guðmundsdóttir, sjónlistakennari
8. Elvar Björn Ólafsson, nemi
9. Kristín Helga Schiöth, alþjóðafræðingur og blómakona
10. Jóhann Jónsson, innkaupastjóri
11. Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir, nemi og íshokkíkona
12. Kristinn Berg Gunnarsson, framhaldsskólakennari
13. Heiðrún Hafdal Björgvinsdóttir, háskólanemi
14. Hallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Saga Travel 1
5. Anna Sigga Jökuls Ragnheiðard., sálfræðingur
16. Unnar Jónsson, forstöðumaður
17. Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri
18. Eiður Stefánsson, formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri
19. Sigríður Huld Jónsdóttir, verkefnastjóri og hjúkrunarfræðingur
20. Þorsteinn Þorsteinsson, fuglaskoðunarmaður
21. Guðrún Gunnarsdóttir, eldri borgari
22. Ragnar Sverrisson, kaupmaður
Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?
„Flest mulig – lengst mulig“ á Akureyri
Lífsgæðakjarni við Rangárvelli
Hljómburður í Matthíasarkirkju