Fara í efni
Umræðan

Lífsgæðakjarni við Rangárvelli

Akureyrarlistinn vill koma á uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara og Eden-garðs sem nýtir glatvarma frá gagnaverum.
 
Lífsgæðakjarni er íbúakjarni með samþættri þjónustu fyrir eldri borgara á einum stað. Í dag er gert ráð fyrir um 40 íbúðum á Tjaldsvæðisreitnum fyrir þennan aldurshóp og öðru eins á Norðurtorgi en það er ekki nóg til að mynda lífsgæðakjarna vegna þess að slík þjónusta krefst stærðarhagkvæmni.
 
Hugmynd Akureyrarlistans um staðsetningu og uppbyggingu á slíkum kjarna er við Rangárvelli þar sem við flokkum úrgang í dag sem getur ekki talist góð nýting á þessu frábæru svæði. Þar mætti koma fyrir stórum lífsgæðakjarna með 200-300 íbúðum ásamt því að hafa stóran yfirbyggðan og upphitaðan Eden garð sem nýtir glatvarmann frá nærliggjandi gagnaverum. Það væri algjörlega frábært að nýta þessa orku sem annars færi til spillis til að búa til stað sem bætir lífsgæði allra Akureyringa.
 
 
Garðurinn væri opinn öllum og í eigu Akureyrarbæjar. Hann myndi nýtast sem samverustaður allt árið um kring, auðvelda íbúum og bæjarbúum að stunda hreyfingu á veturna, væri frábær innandyraafþreying fyrir börn sem og viðkomustaður þeirra sem heimsækja bæinn.
 
Á jarðhæð mætti gera ráð fyrir þjónustu að hluta til t.d. kaffihús sem myndi njóta góða af samlegðaráhrifum við mötuneyti fyrir íbúa, ræktunaraðstöðu, leiktækjum fyrir börn, minigolfi og stórum samkomusal sem bráðvantar fyrir Félag eldri borgara á Akureyri.
 
Slíkur lífsgæðakjarni gæti risið mikið fyrr á þessum stað en fyrirhugaður lífsgæðakjarni vestan Kjarnagötu og þegar ríkið er tilbúið væri einnig hægt að bæta við hjúkrunarheimili á svæðinu.
 
Slík stærðarhagkvæmni myndi gera Akureyrarbæ kleift að veita betri heimaþjónustu á einum stað og gera fólki kleift að búa lengur heima.
 
Samkvæmt tölum frá HMS þá fjölgar Akureyringum hraðast í elsta aldurshópnum og það þarf að bregðast við með róttækum aðgerðum en þessi áform myndu losa um fjölmargar fjölskylduvænar eignir í nágrenni við skóla sem getur sparað stórfé í innviðauppbyggingu leik- og grunnskóla í bænum ásamt því að stuðla að jafnvægi á húsnæðismarkaði og lækkunar vaxta og verðbólgu.
 
Þórhallur Jónsson verður í 1.  sæti Akureyrarlistans við bæjarstjórnarkosningarnar í vor.
 
 

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30