Fara í efni
Umræðan

Gamla, góða Akureyri

Ég sá um daginn viðtal við konu úr bæjarstjórninni þar sem hún viðraði hugmyndir um byggingu háhýsa þar sem þeim er við komið og byggja sem mest á opnum svæðum (grænum blettum) sem engum koma að gagni að henni finnst.

Gangi hennar hugmyndir upp verður Akureyri hin gamla ekki lengur á kortinu sem slík, heldur kemur afskræmd Reykjavík í hennar stað þar sem menn þurfa að skáskjóta sér á milli húsa og útsýnið er næstu blokkir.

Að mínu mati verða Akureyringar að sameinast um að stöðva þessa vitleysu áður en það verður um seinan. Þá kvaðst umrædd kona vonast til að með þessu væri hægt að lokka fólk að sunnan í bæinn. Nú verð ég að segja að ekki er það nú allt merkilegt fé sem úr Reykjavík hefur komið eins og nýleg dæmi sanna, auk annarra rugludalla sem vart teljast velkomnir.

Ég man það vel hvernig Akureyri var hér áður þegar Glerá skipti staðnum í tvo hluta. Akureyri og Glerárþorp þar sem byggð var dreifð yfir stórt svæði. Þar voru kindur, hestar og beljur á beit og hænsni við mörg hús, jafnvel svín. Þar hefur nú risið blómleg byggð og mikil uppbygging átt sér stað. Þar er þó enn til staðar mikið landrými og með ólíkindum ef bæjarstjórn Akureyrar ætlar að hundsa það pláss sem bíður þess að verða nýtt. Vonandi verður þó betur hugað að framtíðinni, en þegar turnarnir í Bótinni voru reistir. Þeir hanga í bratta rétt við flæðarmál og virðast bíða þess að sjórinn klári sitt verk og grafi undan þeim með skelfilegum afleiðingum.

Þá vil ég síðan hæla bæjarstjórn Akureyrar fyrir það sem þeir eiga skilið, en það er að umhirða og sérstaklega frábær snjómokstur og hálkuvarnir síðustu árin hafa verið til mikils sóma og komið í veg fyrir tjón á bílum og sérstaklega alvarleg slys. Þar geta borgarfulltrúar í borg óttans svo sannarlega lært af okkur.

Þá mæli ég eindregið með að leigubílastöðin sem staðið hefur í hjarta Akureyrar verði friðuð og ekki þrengt meira að henni en þegar hefur verið gert.

Virðingarfyllst,

Þorleifur Leó Ananíasson er hundgamall Akureyringur sem man tímana tvenna.

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30