Fara í efni
Umræðan

Sigur og bikarinn á loft – „Fyrir mömmu!“

Bikarinn afhentur í kvöld: Jónína Margrét Guðbjartsdóttir aðstoðarfyrirliði SA og Kristján Heiðar Kristjánsson, stjórnarmaður í Íshokkísambandi Íslands. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Kvennalið SA vann lið SR í lokaleik sínum í Toppdeildinni í íshokkí í kvöld, 3-0. SA-konur fengu deildarmeistarabikarinn afhentan að leik loknum, en liðið vann deildina með miklum yfirburðum og hafði raunar tryggt sér titilinn fyrir allnokkru síðan.

Fyrir leik var stutt minningarathöfn og mínútu þögn til minningar um Sólveigu Huldu Valgeirsdóttur, sem varð bráðkvödd þann 22. febrúar. Útför hennar fer fram á morgun, mánudag. Sólveig Hulda hefur lengi verið viðloðandi starf hokkídeildar og hluti af hokkífjölskyldunni. Dætur hennar, Kolbrún María og Eyrún Arna, eru báðar leikmenn SA. Kolbrún María sneri aftur norður í haust eftir nokkur ár með Fjölni, en hefur þó ekki spilað með liðinu í vetur.

Það var því tilfinningaþrungið andrúmsloft í Skautahöllinni í kvöld, ekki síst í leikslok þegar bikarinn var afhentur og þær systur, Kolbrún María og Eyrún Arna gengu inn á svellið til liðsfélaga sinna ásamt þeim leikmönnum sem ekki voru með vegna meiðsla. Bikarinn gekk á milli leikmanna og þegar Kolbrún María fékk hann í hendur lyfti hún bikarnum og hrópaði: „Fyrir mömmu!“

Leikurinn sjálfur skipti auðvitað litlu máli sem slíkur í stóra samhenginu.

Fyrir leik minntust liðin Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur með mínútu þögn. Mynd: Rakel Hinriksdóttir. 

SA - SR 3-0 (1-0, 1-0, 1-0)

  • 1-0 - Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir (10:45). Stoðsendingar: Silvía Rán Björgvinsdóttir, Aníta Júlíana Benjamínsdóttir.
    Fyrsta markið kom um miðja fyrstu lotuna. Ragnheiður Alís vann þá pökkinn af varnarmanni SR við miðjulínuna, skautaði að markinu, hafði tvo kosti í stöðunni, skjóta eða renna pökknum til vinstri á Silvíu Rán. Hún valdi skotið og pökkurinn söng í netinu. 
  • 2-0 - Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir (27:39). Stoðsendingar: Sveindís Marý Sveinsdóttir, Guðrún Ásta Valentine.
     
    Aðalheiður Anna skoraði annað mark SA með skoti út undir bláu línunni hægra megin. Guðrún Ásta hafði skömmu áður skautað fram allan völlinn, í gegnum vörn SR, en náði ekki góðu skoti. Hún kom þó pökknum á Sveindísi, sem sendi yfir til hægri á Aðalheiði og hún átti lúmskt skot út við nærstöngina.
  • 3-0 - Silvía Rán Björgvinsdóttir (41:03). Stoðsendingar: Amanda Ýr Bjarnadóttir, Bergþóra Bergþórsdóttir.
    Þriðja mark SA kom eftir aðeins rúma mínútu í þriðju lotunni. Silvía Rán fylgdi þá eftir þegar Julianna í marki SR hafði varið skot frá Amöndu.

Öruggur og verðskuldaður sigur SA í höfn og verða SA-konur að teljast afar líklegar til að vinna einnig Íslandsmeistaratitilinn. 

SA

Mörk/stoðsendingar: Silvía Rán Björgvinsdóttir 1/1, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir 1/0, Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir 1/0, Aníta Júlíana Benjamínsdóttir 0/1, Sveindís Marý Sveinsdóttir 0/1, Guðrún Ásta Valentine 0/1, Amanda Ýr Bjarnadóttir 0/1, Bergþóra Bergþórsdóttir 0/1.
Varin skot: Shawlee Gaudreault 17 af 17 (100%).
Refsingar: 4 mínútur.

SR

Varin skot: Julianna Thomson 28 af 31 (90,32%).
Refsingar: 8 mínútur.

Deildarmeistarar SA með bikarinn í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld. Aftari röð frá vinstri: Hank Nagel aðstoðarþjálfari, Eva María Karvelsdóttir, Kolbrún Björnsdóttir, Katrín Ryan, Friðrika Ólöf Stefánsdóttir, Magdalena Sulova, Arna Gunnlaugsdóttir, Freyja Rán Sigurjónsdóttir, Guðrún Ásta Valentine, Aníta Júlíana Benjamínsdóttir, Silvía Mörk Kristinsdóttir, Silvía Rán Björgvinsdóttir fyrirliði, Heiðrún Helga Rúnarsdóttir, Anna Sonja Ágústsdóttir, Arndís Eggerz Sigurðardóttir, Kolbrún María Garðarsdóttir, Eyrún Arna Garðarsdóttir, Jónína Margrét Guðbjartsdóttir aðstoðarfyrirliði, Elísabet Inga Ásgrímsdóttir, formaður hokkídeildar SA, og Richard Hartmann þjálfari.

Fremri röð frá vinstri: Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir, Aníta Ósk Sævarsdóttir, Herborg Rut Geirsdóttir, Bergþóra Bergþórsdóttir, Sólrún Assa Arnardóttir, Amanda Ýr Bjarnadóttir, Sveindís Marý Sveinsdóttir aðstoðarfyrirliði, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir, Lara Mist Jóhannsdóttir og Shawlee Gaudreault.

Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Leikskýrslan

Staðan í Toppdeildinni

SA lýkur keppni í Toppdeildinni með 42 stig úr 16 leikjum. Liðið tapaði aðeins einum leik, en vann hina 15, þar af þrjá í framlengingu eða vítakeppni. SR endar í 2. sætinu, er með með 23 stig, og Fjölnir í 3. sæti, en liðið er með fjögur stig. Reykjavíkurliðin eiga eftir að mætast einu sinni.

Það var reyndar löngu ljóst að SA og SR myndu eigast við í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn, en hún hefst laugardaginn 21. mars.

Leikdagar í úrslitaeinvíginu:

  • Skautahöllin á Akureyri laugardaginn 21. mars
  • Skautahöllin í Laugardal þriðjudaginn 24. mars
  • Skautahöllin á Akureyri fimmtudaginn 26. mars
  • Skautahöllin í Laugardal laugadaginn 28. mars (ef þarf)
  • Skautahöllin á Akureyri þriðjudaginn 31. mars (ef þarf)

Vinna þarf þrjá leiki til að vinna Íslandsmeistaratitilinn.

Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi

Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
09. mars 2026 | kl. 15:45

Hvernig fjölga Akureyringar sér?

Þóroddur Bjarnason skrifar
08. mars 2026 | kl. 11:00

Hvað felst í því að halda áfram aðildarviðræðum?

Erna Bjarnadóttir skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:30

„Þetta er árásarstríð gegn smáríki“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:20

Bæjarstjórnar-klúður í húsnæðismálum

Benedikt Sigurðarson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Farsælt samstarf styður við börn og fjölskyldur í Norðurþingi

Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Sigrún V. Heimisdóttir og Elín Dröfn Þorvaldsdóttir skrifa
02. mars 2026 | kl. 06:00