Fara í efni
Umræðan

U18 íshokkídrengirnir enduðu með silfur

Akureyringarnir í U18 landsliði drengja í íshokkí ásamt akureyrskum starfsmönnum. Nafnalista má finna með myndinni inni í fréttinni. SA á 12 leikmenn af 20 í landsliðshópnum. Myndin er fengin af Facebook-síðu Skautafélags Akureyrar.

Drengjalandslið Íslands í íshokkí skipað leikmönnum 18 ára og yngri tapaði fyrir Tælandi, 3-4, í úrslitaleik liðanna í 3. deild B á Heimsmeistaramótinu í vikunni. Af 20 leikmönnum liðsins eru 12 úr röðum Skautafélags Akureyrar.

Íslenska liðið vann auðveldan sigur á liði Lúxemborgar í fyrsta leik í riðlinum, 12-1, síðan 5-1 gegn Turkmenistan, en tapaði þriðja leik sínum í riðlinum gegn Tælandi, 2-4. Þetta skilaði íslenska liðinu í undanúrslit þar sem sigur vannst á sigurliði hins riðilsins, Bosníu-Herzegovínu í fyrradag, 8-2, og íslenska liðið þar með komið í úrslitaleik um gullverðlaun í 3. deild B á Heimsmeistaramótinu, neðstu deild U18 mótsins, þar sem eru lið nr. 31-36.

Ísland mætti Tælandi í úrslitaleik og náði forystunni þegar SA-maðurinn Elvar Örn Skúlason skoraði í fyrstu lotunni, en Tælendingar jöfnuðu. Ísland komst í 2-1 í annarri lotu, en jöfnuðu í upphafi þriðju lotu og komust yfir, 3-2, en Íslendingar jöfnuðu í 3-3. Fjórða mark Tælendinga kom svo þegar 33 sekúndur voru eftir af leiknum og það dugði þeim til að taka gullverðlaunin. 

SA-drengir í U18 landsliðinu: Alex Máni Ingason, Aron Freyr Gautason, Aron Gunnar Ingason, Askur Reynisson, Bjartur Westin, Elías Orri Rúnarsson, Elvar Ingi Siguðarson, Elvar Örn Skúlason, Finnur Bessi Finnsson, Magnús Sigurður Sigurólason, Mikael Darri Eiríksson og Sölvi Blöndal Sigurðarson. Þeir Aron Gunnar, Askur, Finnur Bessi, Magnús Sigurður og Mikael Darri voru einnig í hópi U20 landsliðsins sem spilaði í Serbíu í janúar, sem og markverðirnir Elías Orri Rúnarsson og Elvar Ingi Sigurðarson.

Auk leikmannanna eru þrír Akureyringar í hópnum í Bosníu-Herzegóvínu, Sigurður Sveinn Sigurðsson, formaður SA, er fararstjóri, Ingi Snorri Bjarkason tækjastjóri og Gauti Þór Grétarsson heilbrigðisstarfsmaður. Svo skemmtilega vill til að þeir þrír eiga allir syni í liðinu. Sölvi Blöndal er sonur Sigurðar, Aron Freyr sonur Gauta og Aron Gunnar sonur Inga.

Akureyringar með U18 landsliðinu í Bosníu-Herzegovínu. Aftari röð frá vinstri: Sigurður Sveinn Sigurðsson fararstjóri, Elías Orri Rúnarsson, Askur Reynisson, Elvar Örn Skúlason, Alex Máni Ingason, Aron Gunnar Ingason, Mikael Eiríksson, Elvar Ingi Sigurðarson, Gauti Þór Grétarsson heilbrigðisstarfsmaður og Ingi Snorri Bjarkason tækjastjóri. Fremri röð frá vinstri: Finnur Bessi Finnsson, Bjartur Westin, Magnús Sigurður Sigurólason, Sölvi Blöndal Sigurðarson og Aron Freyr Gautason.

Mörk og stoðsendingar SA-strákanna í mótinu: Mikael Eiríksson 3/2, Aron Freyr Gautason 3/1, Elvar Örn Skúlason 3/0, Alex Máni Ingason 2/3, Askur Reynisson 1/5, Bjartur Westin 0/1, Magnús Sigurður Sigurólason 0/1.

Elías Rúnarsson var með 93,18% markvörslu og Elvar Sigurðarson 85%.

Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 21:00

Íþróttahús á félagssvæði Þórs

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Hulda Elma Eysteinsdóttir skrifa
19. febrúar 2026 | kl. 18:00

Nýja blokkahverfið á tjaldsvæðisreitnum – Afleitt skipulag

Jón Hjaltason skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 11:30

Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin...

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 16:30

Fimm prósent af alþingismanni

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 20:00

Meirihlutinn skilaði auðu í stefnumörkun atvinnumála

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 12:50