Sanngjarn sigur hjá Þór/KA en síst of stór
Þór/KA vann sinn fyrsta sigur í A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í gær þegar glænýtt Bestudeildarlið Grindavíkur/Njarðvíkur kom í heimsókn í Bogann. Sigurinn var sanngjarn, 1-0, en hefði hæglega getað orðið mun stærri. Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði eina mark leiksins á 10. mínútu. Markvörður gestanna varði vítaspyrnu þegar rúmur hálftími var liðinn af leiknum.
Þór/KA var betra liðið nokkurn veginn allan leikinn og fékk fjölmörg marktækifæri, bæði með góðu uppspili og með pressu á varnarlínu andstæðinganna. Það var hins vegar oftast Lauren Kellett í marki gestanna sem sá til þess að þessi færi nýttust ekki. Mark Þórs/KA kom á 10. mínútu eftir þunga sókn. Bríet Fjóla fékk þá boltann á vítateigslínunni frá nöfnu sinni Jóhannsdóttur og skoraði. Þetta reyndist eina mark leiksins þegar upp var staðið. Bríet Fjóla hefur skorað þrjú mörk í þremur leikjum í Lengjubikarnum.

Bríet Fjóla Bjarnadóttir fékk boltann frá Bríeti Jóhannsdóttur (18) og skaut frá vítateigslínu. Góður markvörður gestanna, Lauren Kellett, kom ekki vörnum við í þetta skipti. Myndir: Ármann Hinrik.
Hjá Þór/KA má segja að stóru tíðindin, fyrir utan sigurinn, hafi verið að Margrét Árnadóttir spilaði sínar fyrstu mínútur frá því snemma í september þegar hún meiddist í leik gegn Stjörnunni í Bestu deildinni. Margrét kom inn þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Þór/KA hefði hæglega getað skorað nokkur mörk í viðbót, en inn fór boltinn ekki. Karen María Sigurgeirsdóttir átti til dæmis sláarskot á fyrstu mínútu viðbótartíma. Um mínútu áður náðu gestirnir hættulegri skyndisókn eftir að boltinn tapaðist á miðjunni, en Bríet Jóhannsdóttir náði að bjarga í horn með góðri tæklingu.
Þór/KA er með þrjú stig eftir þrjá leiki og sækir lið FHL heim í næsta leik, en FHL tapaði stórt heima fyrir Stjörnunni í dag, 0-12.
Þróttur og Stjarnan eru efst í riðlinum með sex stig, en Þór/KA, FH og Grindavík/Njarðvík eru öll með þrjú stig. Liðin hafa þó leikið mismarga leiki.
Íþróttahús á félagssvæði Þórs
Nýja blokkahverfið á tjaldsvæðisreitnum – Afleitt skipulag
Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin...
Fimm prósent af alþingismanni