Fara í efni
Umræðan

Barátta um sætaskipan í algleymingi

Leikmenn KA fagna bikarsigri á þessari mynd, en í dag er það baráttan í deildinni sem er í algleymingi. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

KA tekur á móti ÍBV í efstu deild Íslandsmótsins í handknattleik í dag. 

Baráttan um röð liðanna í Olísdeild karla er í algleymingi á lokakafla deildarinnar, núna þegar fjórar umferðir eru eftir áður en kemur að úrslitakeppni. KA situr í 6. sæti deildarinnar með 22 stig, en næstu tvö lið fyrir ofan eru aðeins með stigi meira og aðeins þrjú stig eru upp í 3. sætið. Stigin sem eftir eru í pottinum eru því mikilvæg og staðan getur breyst fljótt með hverjum sigrinum.

KA tapaði á útivelli fyrir Val í 18. umferðinni, 31-36, en Valur er á toppi deildarinnar með 28 stig. Í dag er komið að heimaleik hjá KA gegn ÍBV, en Eyjamenn eru í 4. sætinu með 23 stig.

  • Olísdeild karla í handbolta
    KA-heimilið kl. 14:45
    KA - ÍBV

Eyjamenn unnu fyrri viðureign þessara liða í Eyjum, 36-34.

Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 21:00

Íþróttahús á félagssvæði Þórs

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Hulda Elma Eysteinsdóttir skrifa
19. febrúar 2026 | kl. 18:00

Nýja blokkahverfið á tjaldsvæðisreitnum – Afleitt skipulag

Jón Hjaltason skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 11:30

Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin...

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 16:30

Fimm prósent af alþingismanni

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 20:00

Meirihlutinn skilaði auðu í stefnumörkun atvinnumála

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 12:50