Fara í efni
Umræðan

Tvöföld tvenna Chloe í sigri Þórs á ÍR

Emma Karólína Snæbjarnardóttir og Chloe Wilson voru stigahæstar í Þórsliðinu. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.

Kvennalið Þórs í körfubolta vann lið ÍR með 24 stiga mun, 98-74, í Íþróttahöllinni á Akureyri í gær. Chloe Wilson náði tvöfaldri tvennu, skoraði 29 stig fyrir Þór og tók 20 fráköst, endaði með 43 framlagspunkta. Emma Karólína Snæbjarnardóttir skoraði 28 stig. 

Sigur Þórs var öruggur og aldrei í hættu. Liðið náði góðri forystu strax í fyrsta fjórðungi og lét hana ekki af hendi. Munurinn var 14 stig eftir fyrsta leikhlutann, en undir lok fyrri hálfleiks og í upphafi þess seinni náðu ÍR-ingar að minnka muninn niður fyrir tíu stigin, en þó ekki nema tímabundið. Þórsstelpurnar juku muninn aftur, náðu mest 28 stiga forskoti, 78-50, þegar rúmar sjö mínútur voru eftir og enduðu með 24 stiga sigri. 

Þór - ÍR (27-13) (18-21) 45-34 (24-13) (29-27) 98-74

Helstu tölur hjá leikmönnum Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Chloe Wilson 29/20/5 - 43 framlagspunktar
  • Emma Karólína Snæbjarnardóttir 28/7/1
  • Yvette Adriaans 20/9/6
  • Emilie Ravn 7/5/4
  • Sigurlaug Eva Jónasdóttir 6/0/2
  • Hjörtfríður Óðinsdóttir 5/0/1
  • Karen Lind Helgadóttir 3/5/1

Tölfræði leiksins.

Staðan í deildinni.

Aþena er á toppi deildarinnar, hefur unnið 12 leiki eins og Þór, en á leik til góða og auk þess betri árangur í innbyrðis viðureignum við Þór. Aþena sækir Vestra heim í dag. Þór hefur unnið 12 og tapað tveimur leikjum.  Fjölnir er í 3. sætinu með 11 sigra í 14 leikjum.

Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 21:00

Íþróttahús á félagssvæði Þórs

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Hulda Elma Eysteinsdóttir skrifa
19. febrúar 2026 | kl. 18:00

Nýja blokkahverfið á tjaldsvæðisreitnum – Afleitt skipulag

Jón Hjaltason skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 11:30

Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin...

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 16:30

Fimm prósent af alþingismanni

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 20:00

Meirihlutinn skilaði auðu í stefnumörkun atvinnumála

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 12:50