Hallgrímur Mar semur áfram við KA – út 2027
Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2027.
„Eru þetta ákaflega jákvæðar fréttir enda hefur Grímsi skrifað sögu knattspyrnudeildar KA upp á nýtt en hann er leikjahæsti leikmaður í sögu félagins með 378 leiki í deild, bikar, Evrópu og meistarakeppni KSÍ,“ segir í tilkynningu á heimasíðu KA í dag. „Hann er einnig markahæsti leikmaður í sögu félagsins með 125 mörk. Þá er hann leikjahæsti leikmaður KA í efstu deild með 209 leiki auk þess að vera markahæsti leikmaður KA í efstu deild með 75 mörk. Enn eitt metið setti hann í sumar er hann varð markahæsti leikmaður KA í Evrópu en hann hefur nú gert 4 mörk í 8 Evrópuleikjum, en enginn hefur leikið fleiri Evrópuleiki fyrir KA.“
Hallgrímur er Húsvíkingurinn, hóf ferilinn með Völsungi en kom til KA 18 ára að aldri sumarið 2009. Hann er orðinn 35 ára en hefur verið burðarás í liði KA mörg síðustu ár.
- Nánar á heimasíðu KA: Hallgrímur Mar framlengir út 2027
Íþróttahús á félagssvæði Þórs
Nýja blokkahverfið á tjaldsvæðisreitnum – Afleitt skipulag
Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin...
Fimm prósent af alþingismanni