Íþróttahús á félagssvæði Þórs
Á meðal stefnumála L-listans fyrir síðustu kosningar var áframhaldandi uppbygging íþróttamannvirkja á Akureyri. Þar var meðal annars lögð áhersla á að ljúka uppbyggingu á KA-svæðinu, sem nú er vel á veg komin, og hefja uppbyggingu á félagssvæði Þórs.
Það eru mikil gleðitíðindi fyrir bæjarbúa að undirbúningur sé nú hafinn fyrir byggingu íþróttahúss á félagssvæði Þórs við Skarðshlíð. Um árabil hefur stór hluti barna og ungmenna innan félagsins þurft að sækja æfingar víða um bæinn, sem hefur haft áhrif á daglegt skipulag fjölskyldna og starfsemi deilda. Nú stefnir í að hægt verði að sameina starfsemi Þórs á einu svæði og styrkja þannig félagsandann enn frekar.
Ljóst er að þörfin fyrir íþróttahús á félagssvæði Þórs hefur verið til staðar lengi. Stærstur hluti fyrirhugaðrar íbúðauppbyggingar á Akureyri fram til ársins 2030 er skipulögð norðan Glerár, meðal annars í Móahverfi, sem mun að öllum líkindum fjölga iðkendum hjá Þór.
Íþróttahúsið mun bæta skipulag æfinga barna og ungmenna með því að skapa betri skilyrði til að halda æfingar fyrr á daginn og draga úr álagi iðkenda seint á kvöldin. Húsið mun rúma fleiri æfingahópa í senn og um leið létta álagi af öðrum íþróttamannvirkjum bæjarins. Af þessu leiðir aukið aðgengi fyrir önnur íþróttafélög, auk þess sem almenningur fær aukinn aðgang að útleigutímum. Þá opnast jafnframt aukin tækifæri fyrir eldri borgara til hreyfingar og heilsueflingar innanhúss.
Gert er ráð fyrir að íþróttahúsið verði fjölnota mannvirki sem nýtist bæði til æfinga og keppni, auk þess að geta hýst margvíslega viðburði. Stefnt er að því að íþróttasalurinn uppfylli kröfur efstu deilda í handbolta og körfubolta og henti jafnframt vel fyrir mót yngri flokka. Einnig er gert ráð fyrir að hægt verði að halda þar stærri samkomur, svo sem ráðstefnur og skemmtanir.
Við forhönnun verður jafnframt horft til næsta áfanga uppbyggingar á svæðinu, þar sem fyrirhuguð er ný félagsaðstaða fyrir starfsemi Þórs. Slík heildaruppbygging mun styrkja umgjörð íþrótta- og félagsstarfs og skapa betri möguleika til samnýtingar húsnæðis.
Uppbygging af þessu tagi styrkir íþróttastarf, eflir lýðheilsu og hefur jákvæð áhrif á samfélagið á Akureyri, auk þess að bæta daglegt líf bæjarbúa.
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir er bæjarfulltrúi L-listans og formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrar.
Hulda Elma Eysteinsdóttir er fyrrverandi bæjarfulltrúi L-listans.
Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin...
Fimm prósent af alþingismanni
Meirihlutinn skilaði auðu í stefnumörkun atvinnumála
Pípuhattur borgríkisins