Fara í efni
Umræðan

Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Í grein á Eyjunni 14. febrúar heldur Sigmundur Ernir Rúnarsson því fram að aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið geti skilað fjölmörgum sérlausnum fyrir íslenskan landbúnað og vísar til aðildarsamnings Finnlands sem dæmis. Í þeirri umfjöllun er þó mikilvægt að gera skýran greinarmun á tveimur ólíkum hugtökum: varanlegum undanþágum og sértækum útfærslum innan gildandi regluverks.

Munurinn er grundvallaratriði.

Varanleg undanþága felur í sér að aðildarríki er undanþegið sameiginlegri stefnu sambandsins á tilteknu sviði. Reglur ESB gilda þá ekki um viðkomandi málaflokk í því ríki.

Sértæk aðlögun eða sérlausn felur hins vegar í sér afmarkaða útfærslu innan ramma regluverksins sjálfs. Hún breytir ekki þeirri staðreynd að málaflokkurinn fellur undir sameiginlega stefnu og yfirstjórn sambandsins.

Þegar Finnland samdi um svonefndan norðlægan stuðning við landbúnað sinn (á grundvelli greina 141 og 142 í aðildarsamningi landsins) fékk það ekki undanþágu frá sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB (CAP). Stuðningurinn var innbyggður í regluverkið og háður samþykki framkvæmdastjórnarinnar hverju sinni. Finnland fékk því ekki sjálfstæða landbúnaðarstefnu utan kerfisins, heldur heimildir til sértækrar útfærslu innan þess og á eigin fjárlögum.

Heimildir sem þessar eru hluti af regluverki sambandsins og lúta breytingum á því. Evrópusambandið getur endurskoðað og breytt sameiginlegri landbúnaðarstefnu með reglulegu millibili, og þar með þeim útfærslum sem innan hennar eru veittar. Það er grundvallarmunur á því að hafa sjálfstæða undanþágu og því að njóta heimildar sem er háð þróun og ákvörðunum innan kerfisins. Þetta eru lykilatriði sem þarf að hafa undirliggjandi í allri nálgun.

Ef Ísland hyggst sækjast eftir varanlegum undanþágum frá sameiginlegri landbúnaðarstefnu þarf að útskýra með hvaða hætti slíkt rúmast innan nútíma stækkunarferlis ESB, þar sem regluverkið (acquis communautaire) er skilgreint sem ófrávíkjanleg heild. Ef hins vegar aðeins er átt við sértækar útfærslur innan fyrirliggjandi regluverks, þá er ekki verið að ræða frávik frá kerfinu heldur aðlögun að því.

Umræðan verður skýrari ef þessi hugtök eru aðgreind. Spurningin snýst ekki um samningatækni eða sjálfstraust við borðið, heldur um það hvort verið sé að tala um raunverulegar undanþágur frá sameiginlegri stefnu eða útfærslur innan hennar.

Erna Bjarnadóttir er hagfræðingur

Íþróttahús á félagssvæði Þórs

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Hulda Elma Eysteinsdóttir skrifa
19. febrúar 2026 | kl. 18:00

Nýja blokkahverfið á tjaldsvæðisreitnum – Afleitt skipulag

Jón Hjaltason skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 11:30

Skert þjónusta sem kostar meira. Íslenska leiðin...

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 16:30

Fimm prósent af alþingismanni

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 20:00

Meirihlutinn skilaði auðu í stefnumörkun atvinnumála

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
16. febrúar 2026 | kl. 12:50

Pípuhattur borgríkisins

Þóroddur Bjarnason skrifar
15. febrúar 2026 | kl. 08:00