Fara í efni
Umræðan

Sálfélagsþjónusta HSN fékk 300.000 frá Ylfu

Alice Harpa Björgvinsdóttir forstöðumaður sálfélagslegrar þjónustu HSN, María Bjarnadóttir, teymisstjóri geðheilsuteymis barna á HSN, Gerður Jónsdóttir formaður Lionsklúbbsins Ylfu og Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Í tilefni ára 15 afmælis Lionsklúbbsins Ylfu á Akureyri færði klúbburinn sálfélagsþjónustu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) á Akureyri 300.000 kr. að gjöf til kaupa á búnaði sem nýtist börnum og ungmennum. Gerður Jónsdóttir, formaður klúbbsins, afhenti Alice Hörpu Björgvinsdóttur,  forstöðumanni hjá HSN, gjafabréf því til staðfestingar, þegar hún og Unnur Vébjörnsdóttir heimsóttu starfsfólks í húsakynnum HSN í gamla Linduhúsinu við Hvannavelli. Þegar hefur verið keyptur margvíslegur búnaður.

Frá vinstri, Alice Harpa Björgvinsdóttir,  forstöðumaður sálfélagslegrar þjónustu HSN, María Bjarnadóttir, teymisstjóri geðheilsuteymis barna, Þórdís Jónsdóttir iðjuþjálfi, Gerður Jónsdóttir formaður Lionsklúbbsins Ylfu, Unnur Vébjörnsdóttir frá Lionsklúbbnum Ylfu, Róshildur Arna Ólafsdóttir sálfræðingur í geðheilsuteymi barna, Friðrik Már Ævarsson sálfræðingur í geðheilsuteymi barna og Hugrún Hauksdóttir læknir í geðheilsuteymi barna.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15