Fara í efni
Umræðan

Kynntu sér nýjustu rannsóknir og þróun

Kristín Brynja Árnadóttir, Friðbjörn Sigurðsson, Þórdís Gísladóttir, Ingibjörg Ingólfsdóttir, Unnsteinn Ingi Júlíusson og Anna Kristrún Sigmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá HSN á Húsavík. Mynd: sak.is.

Fimm starfsmenn Akureyrarklíníkurinnar tóku nýverið þátt í alþjóðlegri ráðstefnu þar sem fjallað var um ME, Long COVID og önnur langvinn veikindi í kjölfar sýkinga. Ráðstefnan, ISLC-PAIS, fór fram í Amsterdam og þar komu saman sérfræðingar, vísindafólk og heilbrigðisstarfsfólk víðs vegar úr heiminum. Áhersla var lögð á nýjustu rannsóknir og þróun á sviði ME, Long COVID og skyldra veikinda, meðal annars varðandi greiningu, meðferð og þjónustu við fólk sem glímir við langvinn einkenni.

Frá Akureyrarklíníkinni sóttu ráðstefnuna Friðbjörn Sigurðsson læknir, Unnsteinn Ingi Júlíusson læknir, Kristín Brynja Árnadóttir iðjuþjálfi, Ingibjörg Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur og Þórdís Gísladóttir deildarstjóri. Þátttakan gaf starfsfólki klíníkurinnar tækifæri til að kynna sér nýjustu rannsóknir og þekkingu á þessu sviði, auk þess að miðla eigin reynslu og mynda tengsl við sérfræðinga og samstarfsaðila frá ýmsum löndum.

Akureyrarklíníkin, sem er samstarfsverkefni Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) og Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), hefur á undanförnum árum byggt upp sérhæfða þekkingu og þjónustu fyrir fólk með ME og langvarandi einkenni eftir Covid-sýkingu. Við klíníkina starfar þverfaglegt teymi þar sem lögð er áhersla á heildstæða þjónustu, ráðgjöf og eftirfylgd.

Í frétt á vef SAk kemur fram að þátttaka starfsfólks Akureyrarklíníkurinnar á alþjóðlegum vettvangi sé mikilvægur þáttur í áframhaldandi þróun þjónustunnar. Með því að fylgjast með nýjustu rannsóknum og miðla reynslu sé hægt að nýta nýja þekkingu í starfi klíníkurinnar og þróa þjónustuna áfram í takt við framfarir á þessu sviði.

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00