Fara í efni
Umræðan

Útlit nýbygginga við SAk liggur fyrir – 9.200 fermetra legudeildir

Nýtt húsnæði fyrir legudeildir Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) mun líta svona út eða því sem næst. Mynd frá hönnunarteymi Verkís, TBL og JCA.

Nýr Landspítali (NLSH) hefur birt niðurstöðu í hönnunarútboði vegna nýs húsnæðis fyrir legudeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Hanna átti nýbyggingu fyrir legudeildir í skurð- og lyflækningadeild og dag-, göngu- og legudeild fyrir geðdeild við núverandi húsnæði Sak.

Fyrir valinu varð hópur sem verkfræðistofan Verkís fer fyrir. Gert er ráð fyrir að um 9.200 m2 nýbygging verði staðsett sunnan við núverandi byggingar og tengd eldra húsnæði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá NLSH í morgun. Þar segir ennfremur að gert sé ráð fyrir að verklegar framkvæmdir geti hafist með jarðvinnu árið 2025.

Haldið var forval í lok síðasta árs og komust fimm hönnunarteymi áfram. Valmódel lokaða útboðsins var tvískipt. Gæði tillögu gilti 60% og tilboðsverð hönnunarteymis 40% af heildareinkunn sbr. reglur útboðsins. Skipuð matsnefnd fór yfir gæðahlutann en í henni voru Kristján Þór Júlíusson sem var formaður, Ásthildur Sturludóttir, Helgi Davíð Ingason, Hildigunnur Svavarsdóttir og Lilja Stefánsdóttir. Áætlun NLSH um hönnunarkostnað var 779,5 milljónir króna án virðisaukaskatts..

Hæsta heildarskor úr báðum matshlutum, 92,99, stig hlaut hópur Verkís en ásamt Verkís eru þar TBL arkitektar, JCA Ltd. og Brekke & Strand. Hópurinn er með kostnaðartilboð sem nemur 753,5 m.kr. eða 97% af kostnaðaráætlun.

Heildarniðurstaðan varð þessi:

Verkís 92,99 stig, 753,5 milljónir króna

Mannvit 92,18 stig, 668,7 milljónir króna

Tröð 76,27 stig, 685,5 milljónir króna

Efla 75,00 stig, 621,6 milljónir króna

Nordic 65,83 stig, 806,3 milljónir króna

NLSH hefur kynnt bjóðendum niðurstöðuna og verkefnið verður nú unnið áfram í samræmi við lög um skipan opinberra framkvæmda. Gert er ráð fyrir að verklegar framkvæmdir geti hafist með jarðvinnu árið 2025, sem fyrr segir.

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00