Fara í efni
Umræðan

Ræddu saman í gær og hittast aftur í dag

Á kjörstað! Oddvitar framboðanna þriggja sem ræða nú saman um mögulegt meirihlutasamstarf á Akureyri. Frá vinstri: Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Framsóknarflokki, Heimir Örn Árnason, Sjálfstæðisflokki og Gunnar Líndal Sigurðsson, L-lista. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Fulltrúar L-lista, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ræddu saman í gær um möguleika á myndun meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar, eins og Akureyri.net greindi frá í hádeginu að stæði til – sjá hér.

Engin tíðindi var að hafa af fundi gærdagsins önnur en þau að hópurinn myndi hittast aftur í dag.

Listarnir þrír fengu þessa útkomu í kosningunum:

  • L-listi, Bæjarlisti Akureyrar 1.705 atkvæði – 18,7% – 3 bæjarfulltrúar (var með 2)
  • Sjálfstæðisflokkur 1.639 atkvæði – 18,0% – 2 bæjarfulltrúar (var með 3)
  • Framsókn 1.550 atkvæði – 17,0% – 2 bæjarfulltrúar (var með 2)

Bæjarfulltrúar listanna eru þessir: 

  • L-listi– Gunnar Líndal Sigurðsson, Elma Eysteinsdóttir, Halla Björk Reynisdóttir
  • Sjálfstæðisflokkur– Heimir Örn Árnason, Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Framsókn– Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Gunnar Már Gunnarsson

Aðeins Halla Björk Reynisdóttir, sem var í þriðja sæti L-lista, hefur setið í bæjarstjórn áður, hin sex eru nýliðar.

Smellið hér til að lesa frétt Akureyri.net um lokatölur í bæjarstjórnarkosningunum

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20

Látum Loftbrúna vera

Sindri S. Kristjánsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 13:10

Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
02. nóvember 2026 | kl. 14:10