Fara í efni
Umræðan

Lovísa Oktovía í efsta sæti hjá Viðreisn

Efstu fjögur á lista Viðreisnar á Akureyri. Frá vinstri: Elísabet Ögn Jóhannsdóttir (4.), Elías Gunnar Þorbjörnsson (2.), Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir (1.) og Þóroddur Ingvarsson (3.) Mynd: Viðreisn

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, stjórnmálafræðingur og varaþingmaður, verður í fyrsta sæti á lista Viðreisnar við bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri í vor. Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri Giljaskóla, verður í öðru sæti, Þóroddur Ingvarsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir og í þriðja sæti og Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, verkefnastjóri menningarmála hjá Akureyrarbæ í fjórða sæti.

Félagsfundur Viðreisnar á Akureyri staðfesti í kvöld tillögu uppstillinganefndar um röðun á lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þetta er í fyrsta skipti sem flokkurinn býður fram í bæjarstjórnarkosningum á Akureyri.

„Viðreisn mun setja fókus á þjónustu við íbúa, með sérstaka áherslu á börn og skólamál,“ segir Lovísa Oktovía í tilkynningu frá Viðreisn. „Við þurfum fjölbreyttari úrræði fyrir börn, bæði á skólatíma og utan. Það þarf líka að auka stuðning við okkar góða fagfólk sem vinnur með börnum. Hvað varðar samfélagið í heild, þá horfir Viðreisn á það að stíga inn í bæjarstjórn, í fyrsta sinn, með skýra sýn um hvernig Akureyri á að þróast. Við viljum að aðgengi íbúa að mikilvægri þjónustu sé í forgrunni. Við horfum líka mjög til nýrrar borgarstefnu um það hvernig umhverfið á að vera fyrir íbúa, fyrirtæki og gesti. Við viljum stuðla að samfélagi, þar sem vel er tekið utan um fólk með mismunandi þarfir og væntingar til lífsins.“

Listinn í heild:

1. Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, stjórnmálafræðingur og varaþingmaður
2. Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri
3. Þóroddur Ingvarsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir
4. Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, verkefnastjóri menningarmála
5. Íunn Eir Gunnarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur
6. Hjálmar Pálsson, sölumaður
7. Unnur Pétursdóttir, sjúkraþjálfari
8. Vilhjálmur Kristjánsson, framhaldsskólakennari
9. Halla Rut Ákadóttir, umönnun/aðstoðarmaður
10. Magnús Hilmar Felixson, deildarstjóri á leikskóla
11. Þórey Sif Þórisdóttir, flugmaður
12. Axel Björnsson forritari
13. Veronika Lalkova Bozhkova hjúkrunarfræðingur
14. Halldór Jóhannesson, hafnarstarfsmaður og vélfræðingur
15. Anna Svava Traustadóttir, fótaaðgerðarfræðingur
16. Árni Jón Erlendsson, sérfræðingur í rafrænu eftirliti
17. Arna Garðarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
18. Ólafur Ingimarsson, yfirlæknir á bæklunarskurðdeild
19. Eydís Arna S. Eiríksdóttir, fv móttökuritari
20. Kristján Ingimar Ragnarsson leiðsögumaður
21. Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir, læknir
22. Ingvar Þóroddsson, heimilis- og endurhæfingarlæknir/ ellilífeyrisþegi

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15