Fara í efni
Umræðan

Perlur Akureyrar, framtíð Hríseyjar og Grímseyjar

Eyjarnar tvær sem tilheyra Akureyrabæ eru sannarlega perlur. Þótt margt sé sameiginlegt með þeim eru þær jafnframt ólíkar að mörgu leyti. Hrísey er aðeins í um 15 mínútna siglingafjarlægð frá landi, en sigling til Grímseyjar tekur um þrjár klukkustundir. Auk þess er boðið upp á flug til Grímseyjar frá Akureyri, þjónusta sem ekkert annað sveitarfélag á landinu býður upp á innanbæjar.

Áreiðanlegar samgöngur eru grundvallarforsenda þess að byggð geti blómstrað, bæði í Hrísey og Grímsey. Því ber okkur skylda til að standa vörð um þessa mikilvægu þjónustu með öllum tiltækum ráðum.

Misvísandi skilaboð felast í því að styrkja eyjasamfélögin á sama tíma og dregið er úr samgöngum, líkt og með fyrirhugaðri fækkun ferða til Grímseyjar. Það hefur alvarleg áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf eyjarinnar. Við verðum að standa með Grímseyingum í þessu máli.

Hrísey í sókn, tækifæri til frekari uppbyggingar

Margt jákvætt hefur gerst í Hrísey undanfarin ár. Ungt fólk er að flytja aftur á eyjuna og bæði skóli og leikskóli bera þess merki að samfélagið er í vexti. Félagsstarf barna í Hrísey er kraftmikið og þar er ávallt eitthvað í gangi. Næsta skref gæti orðið að bæta við sparkvelli við íþróttahúsið og sundlaugina, sem myndi styrkja enn frekar aðstöðu fyrir unga sem aldna.

Starf eldri borgara er jafnframt á uppleið. Seinni hluta vetrar var hafist handa við ýmsa viðburði og vonir standa til að sú þróun haldi áfram næsta vetur og festist í sessi.

Þjónusta við íbúa Hríseyjar er almennt góð og væri ánægjulegt að fleiri sæju þau tækifæri sem felast í því að búa á eynni. Skortur á leiguhúsnæði er þó enn verulegt vandamál. Mikil áskorun, en jafnframt mikilvægt tækifæri, væri ef bærinn færi í markvissa vinnu við að gera Hrísey að eftirsóttum stað til uppbyggingar. Eins og staðan er í dag mæta þeir sem vilja byggja ýmsum hindrunum. Í samkeppni við sveitarfélög á borð við Dalvík, Árskógssand og Hauganes stendur Hrísey verr, þar sem lóðir þar eru ódýrari og svæði betur undirbúin, meðal annars með lögnum og götum. Þá er lóðavalið mjög takmarkandi, ekki er hægt að velja sér lóð nema fyrri lóðir (sem fremstar eru) hafi verið seldar. Slíkt fyrirkomulag hamlar verulega eðlilegri uppbyggingu.

Stuðningur sem skiptir sköpum

Til þess að Hrísey geti áfram dafnað þarf skýra og samstillta stefnu sem byggir á fjölbreyttu atvinnulífi, öflugri byggðastefnu, skynsamlegri ferðaþjónustu, traustum samgöngum og sterku skólastarfi.

Jafnframt er mikilvægt að Grímsey nái aftur styrk sínum, enda ber okkur skylda til að standa vörð um þessa nyrstu byggð landsins. Þar eru samgöngur lykilatriði, fólk þarf að finna raunverulegan stuðning samfélagsins til að treysta sér til búsetu og uppbyggingar.

Setjum X við C á laugardaginn.

Kristján Ingimar Ragnarsson er Hríseyingur sem skipar 20. sæti á lista Viðreisnar fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri 16. maí.

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15