Fara í efni
Umræðan

Opna Norðlenska að hefjast – KA-Þór í kvöld

Þór og KA mættust síðast í lokaumferð deildarkeppni Íslandsmótsins í Höllinni um miðjan mars. Þá gerðu liðin jafntefli og aðeins hitnaði í kolunum eins og gjarnan vill verða í þessum rimmum. Mynd: Ármann Hinrik

Handknattleikslið KA, Þórs og KA/Þórs verða öll í eldlínunni næstu daga þegar hið árlega Opna Norðlenska fer fram í KA-heimilinu. Mótið hefst á Akureyrarslag strax í kvöld, miðvikudaginn 12. ágúst, þegar KA og Þór mætast klukkan 18:30.

Íslandsmótið hefst í byrjun september og þetta mót er fastur liður í undirbúningnum.

Þrjú lið taka þátt í hvorum flokki. Í karlaflokki leika KA og Þór ásamt ÍR en í kvennaflokki er KA/Þór, ÍR og Afturelding.

Bæði Akureyrarliðin leika í efstu deild Íslandsmótsins, Olís-deildinni, á komandi tímabili en ÍR-ingar, þriðja karlalið mótsins, verða í næst efstu deild, Grill 66-deildinni.

Kvennalið KA/Þórs hefur leik annað kvöld, fimmtudagskvöld, þegar liðið mætir Aftureldingu klukkan 20:00. Afturelding leikur í Grill 66-deildinni í vetur en KA/Þór og ÍR verða í Olís-deildinni.

Á föstudag leikur KA/Þór gegn ÍR klukkan 18:30, og tveimur tímum síðar mætir Þór karlaliði ÍR. KA og ÍR eigast síðan við í karlaflokknum klukkan 11:30 á laugardagsmorgun og mótinu lýkur klukkan 13.30 með viðureign ÍR og Aftureldingar í kvennaflokki.

Frítt er á mótið í boði Norðlenska.

Miðvikudagur 12. ágúst

  • 18:30 – KA - Þór (kk)

Fimmtudagur 13. ágúst

  • 20:00 – KA/Þór – Afturelding (kvk)

Föstudagur 14. ágúst

  • 18:30 – KA/Þór – ÍR (kvk)
  • 20:30 – Þór – ÍR (kk)

Laugardagur 15. ágúst

  • 11:30 – KA – ÍR (kk)
  • 13:30 – ÍR – Afturelding (kvk)

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30

Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 11:30