Fara í efni
Umræðan

KA tekur á móti Víkingi – Þór sækir KR heim

Myndir: Anton Brink (vinstri), Ármann Hinrik (hægri).

Í dag eru tveir leikir á dagskrá Akureyrarliða, bæði karlaliðin í fótboltanum leika í 2. umferð Bestu deildarinnar. KA fær Íslandsmeistarana í heimsókn, en Þórsarar sækja KR-inga heim í Vesturbæinn á sama tíma. 

KA byrjar Bestu deild karla í knattspyrnu á tveimur heimaleikjum. Í dag tekur KA á móti Íslandsmeisturum Víkings í 2. umferð deildarinnar.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Greifavöllurinn á Akureyri kl. 17:30
    KA - Víkingur

KA fékk Stjörnuna í heimsókn í fyrstu umferðinni og þurfti að sætta sig við 2-3 tap á heimavelli. Víkingur gerði 1-1 jafntefli við Breiðablik í opnunarleik deildarinnar síðastliðið föstudagskvöld.

- - -

Þór leikur annan leik sinn í Bestu deild karla í knattspyrnu á föstudag, og jafnframt annan útileik sinn í upphafi móts. Þórsarar fara í Vesturbæ Reykjavíkur og mæta þar KR-ingum á Meistaravöllum.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 2. umferð
    Meistaravellir í Reykjavík kl. 17:30
    KR - Þór

Bæði lið hófu keppni með sigri í fyrstu umferðinni. Þór vann Val á Hlíðarenda, 2-1, og KR vann 3-2 sigur á Keflvíkingum á sínum heimavelli, Meistaravöllum.

Heilabilun og samþætting þjónustu

Anna Sigga Jökuls Ragnheiðardóttir skrifar
12. maí 2026 | kl. 06:00

Við viljum greitt aðgengi að íþróttum og menningu á Akureyri

Linda Egilsdóttir og Elmar Logi Heiðarsson skrifa
11. maí 2026 | kl. 18:00

Sameinum kraftana – byggjum sterkara sveitarfélag

Hjálmar Pálsson skrifar
11. maí 2026 | kl. 10:30

„Hvenær hættiði að tala um þessa sundlaug?“

Stefán Oddur Hrafnsson og Dýrleif Skjóldal skrifa
11. maí 2026 | kl. 06:00

Stefnum hátt

Ragnar Sverrisson skrifar
11. maí 2026 | kl. 06:00

Sumarið sem kom á óvart

Kristín Helga Schiöth skrifar
10. maí 2026 | kl. 17:30