Fara í efni
Umræðan

Hver stendur með kennurum – ef einhver?

Grunnskólakennarar hafa mátt þola mikla og neikvæða umræðu um störf sín að undanförnu, mest þó frá menntamálaráðherrum Flokks fólksins, sér í lagi þó formanni flokksins. Vegið hefur verið ítrekað að starfsheiðri kennara, fagmennsku þeirra og sérfræðiþekkingu og því jafnvel haldið fram að þeim hafi í grundvallaratriðum mistekist að koma stórum hluta nemenda skammlaust í gegnum 10 ára skólagöngu. Ráðherra hefur að undanförnu hæðst að kennurum, talað niður til þeirra, gert lítið úr þeim, efast um heilindi þeirra og snúið út úr starfsheitum forystufólks samtaka kennara svo fátt eitt sé til talið. Niðurstöðum gagna og rannsókna á námi og skólastarfi er snúið á haus og/eða þær túlkaðar á versta veg, að því er virðist í þeim tilgangi einum að ala á tortryggni gagnvart kennurum og skólastarfi. Ofan í þetta tilkynnti svo ráðherra nýlega um veigamiklar breytingar á skólakerfinu, sér í lagi námsmati, án eðlilegs samráðs við fagfólk og sérfræðinga á þeim sviðum, hvað þá að upplýsa um hvernig þær breytingar eiga að vinnast eða taka gildi. Þess í stað hefur ráðherra ákveðið að taka almennar skoðanakannanir framar viðurkenndum rannsóknum sérfróðra aðila á menntamálum á einstökum þáttum skólastarfsins. Boðaðar breytingar ganga síðan þvert á það starf sem unnið hefur verið í skólum á undanförnum árum og stendur reyndar enn yfir í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, megin undirstofnun ráðuenytisins í menntamálum.

Það hefur vakið athygli mína hvað kennarar hafa fengið lítinn stuðning úr samfélaginu við að verja sitt fag og skólastarf, sem fyrst og síðast snýr að menntun og velferð barna og í raun engu öðru. Hvers vegna er það? Hvað finnst foreldrum, sveitarstjórnarfólki og þingmönnum um framgöngu ráðherra? Því þegir þetta fólk þunnu hljóði þegar vegið er svo harkalega að sérfræðiþekkingu og starfsheiðri þessa mikilvæga fagfólks sem kennarar eru?

Hvað finnst bæjarfulltrúm á Akureyri? Því taka þeir ekki afstöðu með starfsfólki sínu og standa með sínu besta fagfólki í menntunarmálum þegar að því er sótt?

Ég kalla eftir viðbrögðum bæjarfulltrúa á Akureyri og öðru forystufólki þeirra flokka sem þeir sitja fyrir. Hver er ykkar hugur í þessu máli? Standið þið með kennurum? Má búast við því að þið takið afstöðu með þessu starfsfólki bæjarins þegar að því er sótt?

Ég hvet ykkur öll, hvar í flokki sem þið standið að standa nú þétt við hlið kennara og því góða skólastarfi sem á sér stað daglega í skólum bæjarins og Akureyrarbær hefur lengi og réttilega getað stært sig af.

Það er kominn tími til að þið látið í ykkur heyra.

Björn Valur Gíslason er skipstjóri

Frá sigri mannsandans yfir í neyðarástand

María Pálsdóttir skrifar
20. apríl 2026 | kl. 09:00

Villandi samanburður við Norðmenn

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
19. apríl 2026 | kl. 20:00

Opið bréf til Drenglyndis

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
19. apríl 2026 | kl. 14:15

Sterkari Háskóli, sterkari Akureyri!

Maríanna Margeirsdóttir skrifar
19. apríl 2026 | kl. 14:00

Regnbogagrýlan

Sigtryggur Ellertsson skrifar
19. apríl 2026 | kl. 12:00

Kirkjan, Snorri og kynjamálin

Hólmgeir Karlsson skrifar
18. apríl 2026 | kl. 14:30