Blak: Svekkjandi tap hjá KA gegn HK
KA þurfti að sætta sig við svekkjandi 3:2 tap gegn HK í KA-heimilinu í dag í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna. KA-stelpurnar komust í kjörstöðu með því að vinna fyrstu tvær hrinurnar í leiknum en HK náði að snúa leiknum sér í vil og vinna þrjár hrinur í röð. HK leiðir því einvígð 2:0 og þarf aðeins einn sigur í viðbót til að hrifsa Íslandsbikarinn úr höndum KA.
KA leiddi alla fyrstu hrinuna og vann hana örugglega, 25:17. Önnur hrina var jafnari en KA setti í gírinn í stöðunni 19:15 HK í vil. Gestirnir skoruðu aðeins tvö stig til viðbótar í hrinunni og lokatölur 25:21 KA í vil. Þriðja hrina var jöfn framan af en um miðbik hennar náði HK frumkvæðinu og tókst að halda því út hrinuna. Hrinan endaði 25:20 fyrir HK og þar með minnkuðu gestirnir muninn í 2:1 í leiknum.
HK vann í oddahrinu - þarf bara einn sigur enn
HK tókst síðan að jafna leikinn með sigri í kaflaskiptri fjórðu hrinu. KA byrjaði mun betur og náði ágætu forskoti en HK vaknaði til lífsins og vann það upp. Síðan skiptust liðin á forystunni en HK knúði fram sigur að lokum með því að skora fimm síðustu stigin og vinna hrinuna 25:22.
Úrslitin réðust því í oddahrinu og þar hafði HK tögl og hagldir allan tímann. Stelpurnar úr Kópavogi unnu hana 15:10 og leikinn þar með 3:2. Sannarlega erfiður biti að kyngja fyrir KA eftir að hafa unnið fyrstu tvær hrinurnar.
Þriðji leikur liðanna verður leikinn í Kópavogi næstkomandi miðvikudag og með sigri í þeim leik tryggir HK sér Íslandsmeistaratitilinn. KA mun væntanlega leggja allt í sölurnar í þeim leik og takist KA að vinna hann verður fjórði leikur liðanna í KA-heimilinu um næstu helgi.
Frístundamál barna á Akureyri: er kominn tími á næsta skref?
Sterkur skólabær – vinnum þetta saman
Símafrí sem virkar í Akureyarbæ
Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara