Fara í efni
Umræðan

Komum á frístundastyrk fyrir foreldra í fæðingarorlofi!

L-listinn ætlar að setja ungt barnafólk í forgang. Við ætlum að stíga nýtt skref í þá átt með því að innleiða frístundastyrk fyrir foreldra í fæðingarorlofi.

Við þekkjum vel frístundastyrk fyrir börn, sem hefur reynst vel og sýnt fram á mikilvægi sitt. Sá stuðningur hefur gert börnum kleift að taka þátt í íþróttum og tómstundum, óháð efnahag.

Hugmyndin gengur út á að foreldrar sem eru í fæðingarorlofi fái sérstakan styrk sem hægt er að nýta í fjölbreytta frístundaiðkun. Það gæti til dæmis verið í líkamsrækt, sund, jóga, foreldramorgna eða aðra viðburði sem stuðla að vellíðan og félagslegri þátttöku.

Styrkurinn er ekki aðeins hugsaður sem fjárhagsleg aðstoð á tímabili þar sem tekjur lækka. Hann er ekki síður mikilvæg hvatning fyrir foreldra til að taka þátt í hreyfingu og virkni sem styður bæði líkamlega og andlega heilsu. Eftir barnsburð getur andleg líðan verið brothætt, og því skiptir miklu máli að skapa aðstæður sem hvetja foreldra til að huga að eigin vellíðan.

L-listinn leggur áherslu á lýðheilsu og forvarnir. Fyrir alla.

Óðinn Svan Óðinsson er í 1. sæti L-listans fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í maí og Paula del Olmo Gómez í 8. sæti.

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30