Fara í efni
Umræðan

Afreks Akademía Akureyrar

Akureyri hefur lengi verið þekkt sem öflugur íþrótta‑ og menningarbær, og það af góðri ástæðu. Hér hefur alist upp framúrskarandi afreksfólk á sviði íþrótta, lista og tónlistar sem hefur náð árangri bæði hér heima og á alþjóðavettvangi.

Spurningin er hvort við sem sveitarfélag getum gert enn betur í því að styðja við slíkt afreksstarf?

Heildræn nálgun að afburðum

Á undanförnum árum hefur áhersla á afreksstarf aukist, einkum á sviði íþrótta. Samhliða þessu felast þó skýr tækifæri í því að nálgast hugmyndina um afrek með breiðari og heildrænum hætti.

Við í Viðreisn viljum leggja grunn að afreksakademíu fyrir nemendur í 8.–10. bekk þar sem íþróttir, listir og menning fá jafnt vægi. Akademían myndi jafnframt byggja á markvissri þjálfun í persónulegri færni og vellíðan.

Markmið afreksakademíunnar er að skapa umhverfi þar sem nemendur fá svigrúm til að þróa hæfileika sína á sínum áhugasviðim á skólatíma, án þess að það komi niður á almennu námi eða andlegri og líkamlegri heilsu. Akademían byggir á þeirri sýn að afrek snúist ekki eingöngu um árangur í keppni eða frammistöðu, heldur einnig um sjálfsþekkingu, aga, seiglu og hæfni til að vinna með öðrum.

Skipulag akademíunnar myndi byggja á þremur meginþáttum:

  • Í fyrsta lagi yrði boðið upp á sérhæfða þjálfun á kjörsviði nemenda, svo sem íþróttum, tónlist eða öðrum listgreinum. Þar fengju nemendur tækifæri til að æfa sig og þroskast undir leiðsögn fagfólks sem hluta af reglulegri stundatöflu.
  • Í öðru lagi yrði lögð áhersla á þjálfun í svokallaðri afrekshæfni, sem myndi náyfir þætti eins og markmiðasetningu, leiðtogafærni, samskipti og sjálfsaga. Með markvissri vinnu á þessum sviðum læra nemendur að takast á við áskoranir, vinna í teymi og bera ábyrgð á eigin framförum.
  • Í þriðja lagi yrði unnið með líkamlega og andlega vellíðan. Þar má nefna þætti á borð við öndunaræfingar, núvitund, létta hreyfingu og fræðslu um álagsstjórnun.
  • Markmiðið er að stuðla að jafnvægi, efla seiglu og draga úr líkum á kulnun eða brottfalli, sem hefur orðið sífellt algengara meðal ungs afreksfólks.

Lykilforsenda árangursríkrar innleiðingar afreksakademíu er virkt og markvisst samtal við helstu hagsmunaaðila. Þar skipta stjórnendur skóla, kennarar, foreldrar og nemendur sjálfir miklu máli, ásamt aðilum utan skólans svo sem íþróttafélög, tónlistarskólar og aðrir sem koma að þjálfun og menntun ungmenna. Mikilvægt er að skapa sameiginlega sýn á markmið akademíunnar tryggja að allir aðilar hafi skýran skilning á hlutverki sínu og ábyrgð innan hennar.

Samtalið þarf einnig að taka til skipulags og framkvæmdar, svo sem samræmingu æfinga við skólatíma, stuðnings við nemendur og eftirfylgni með líðan og álagi. Með reglulegu og opnu samstarfi skapast traust og sveigjanleiki, sem er lykilforsenda þess að verkefnið geti dafnað til lengri tíma.

Slík akademía snýst um miklu meira en afrek. Hún mótar einstaklinga, styrkir sjálfsmynd, vellíðan og byggir upp færni sem fylgir einstaklingum alla ævi, hvort sem framtíðin liggur í íþróttum, listum eða á öðrum sviðum lífsins.

Íunn Eir Gunnarsdóttir er með M.ed gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði með áherslu á stjórnun og þróunarstörf og skipar 5. sæti á lista Viðreisnar í kosningum til bæjarstjórnar á Akureyri.

„Hvenær hættiði að tala um þessa sundlaug?“

Stefán Oddur Hrafnsson og Dýrleif Skjóldal skrifa
11. maí 2026 | kl. 06:00

Stefnum hátt

Ragnar Sverrisson skrifar
11. maí 2026 | kl. 06:00

Sumarið sem kom á óvart

Kristín Helga Schiöth skrifar
10. maí 2026 | kl. 17:30

Mannréttindi á okkar dögum

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
10. maí 2026 | kl. 11:00

Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið

Óðinn Svan Óðinsson skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hvert stefnir menningin?

Elsa María Guðmundsdóttir skrifar
09. maí 2026 | kl. 10:30