Kirkjan, Snorri og kynjamálin
Hvert erum við komin í umræðunni?
Ég veit svei mér ekki hvort ég er ósáttari við málflutning Snorra Mássonar varaformanns Miðflokksins eða fulltrúa kirkjunnar sem nú hafa einnig stigið fram í umræðu um fánamál við grunnskóla.
Sjálfur er ég meðlimur bæði í Þjóðkirkjunni og Miðflokknum og þykir vænt um störf beggja. Það veit ég líka að hvergi í stefnu Miðflokksins er að finna andúð gegn hinsegin fólki eða fána þeirra.
Ef ég byrja á málflutningi Snorra þá vil ég kannski helst segja að hann hafi verið taktlaus eða í það minnsta klaufalegur þar sem ég held að hann hafi einungis viljað umræðu um það hvort eðlilegt væri að flagga tilteknum fána við grunnskóla eða ekki, en ekki umræðu um baráttu eða tilvist hinsegin fólks í samfélaginu.
Ekkert ætti heldur að vera óeðlilegt við það að ræða þessa hluti rétt eins og annað í okkar samfélagi. Mjög margt annað hefur líka verið bannað í skólunum landsins gegnum tíðina sem haft gæti áhrif á skoðanir barnanna okkar með einhverjum hætti og þar með talið boðskap kirkjunnar með þeim rökum að ekki mætti ýta þeim boðskap að frekar en skoðunum annarra trúfélaga.
Það er samt mikill óþarfi að ögra fólki með þessum hætti eins og þú gerir kæri Snorri. Þú hefðir alveg örugglega getað tekið þetta mál upp án þess að stefna því í þennan farveg eða kannski það sem er mögulega sannleikurinn, að gefa ekki andstæðingum flokksins þetta gullna tækifæri til að snúa útur og reyna að láta líta út eins og flokkurinn taki ekki hinsegin fólki eins og öðru fólki sem gildum þegnum okkar samfélags.
Kirkjan er að vinna ómetanlegt og gott starf bæði prestar hennar og biskupinn nýi sem ég hef miklar mætur á. Við fulltrúa kirkjunnar vil ég bara segja þetta. Ekki taka þátt í að afvegaleiða eitthvað sem í besta falli er klaufaleg umræða frá Snorra hendi. Standið á ykkar og talið útfrá gildum kirkjunnar og berjist þá frekar fyrir tilvist og boðskap þjóðkirkjunnar í grunnskólunum en að hoppa á þennan dyggðarvagn afvegaleiddrar umræðu.
Miðflokkurinn er stjórnmálaafl sem er að gera góða hluti og hefur stefnu sem horfir sterkt til þess að við byggjum samfélag um allt land þar sem allir grunnþættir samfélagsins, eins og mennta og helbrigðismál sem dæmi, séu eins fyrir alla óháð efnahag, skoðunum og lífssýn. Flokkur sem leggur ríka áherslu á lýðræði og sjálfstæði landsins. Flokkur sem stendur með vinnandi fólki, bændum, matvælaframleiðslu og öflugu atvinnulífi almennt sem myndar grunn að búsetu og helbrigðum samfélögum um allt land og um leið þeim tekjum sem staðið geti undir alvöru velferð í samfélaginu.
Framundan eru sveitarstjórnarkosningar og því bið ég ykkur í það minnsta að láta þessa umræðu ekki trufla heiðarleg og metnaðarfull störf þeirra sem eru að bjóða fram krafta sína til sveitarstjórna. Hér á Akureyri er t.d. mjög öflugur hópur að baki Miðflokknum sem er með metnaðarfull áform um að gera gott enn betra hér í sveitarfélaginu okkar.
Hólmgeir Karlsson skipar 7. sæti á lista Miðflokksins á Akureyri í bæjarstjórnarkosningunum í maí
Sterkur skólabær – vinnum þetta saman
Símafrí sem virkar í Akureyarbæ
Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara
Öryggi í fyrirrúmi - sameinumst öll um nýja Slökkvistöð á Akureyri