Fara í efni
Umræðan

KA tekur á móti Ægi í Mjólkurbikarnum

Guðjón Ernir Hrafnkelsson, til vinstri, og Hallgrímur Mar Steingrímsson fagna marki þess síðarnefnda í 2:0 sigrinum á ÍBV í Bestu deildinni um síðustu helgi. Mynd: Ármann Hinrik.

Mjólkurbikarkeppni karla og kvenna í knattspyrnu er allsráðandi þessa vikuna. Tvö Akureyrarlið verða í eldlínunni og verða það karlarnir hjá KA sem ríða á vaðið. 

Sextán liða úrslit í Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu hófust í gær, en KA á leik í dag. KA fékk heimaleik í 16 liða úrslitunum, og má segja að lukkan hafi verið með í drættinum því andstæðingarnir, Ægir úr Þorlákshöfn, sem unnu 2. deildina í fyrrahaust, sitja nú í botnsæti Lengjudeildarinnar að loknum þremur umferðum. En í bikarkeppni geta auðvitað orðið til alls konar ævintýri, eins og bæði liðin þekkja.

  • Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu
    16 liða úrslit
    KA-völlur (Greifavöllurinn sunnan við KA-heimilið – gervigras), kl. 14
    KA - Ægir

KA féll úr bikarkeppninni með 2-4 tapi fyrir Fram í 16 liða úrslitunum í fyrra. Ægismenn eru hins vegar komnir mun lengra í keppninni núna en í fyrra, þegar þeir féllu úr keppni með 2-3 tapi fyrir KV í fyrstu umferð forkeppninnar. Ægir nær að minnsta kosti þremur bikarleikjum í ár því liðið sigraði Reyni úr Sandgerði í annarri umferð forkeppninnar, 2-0 í lok mars, og vann síðan 7-1 útisigur á Árbæ í 32 liða úrslitunum í byrjun apríl. KA vann sömuleiðis stórsigur í 32 liða úrslitum, sigraði Hött á Egilsstöðum 5-0.

Húsnæðismál 60 ára+ – íbúaþróun á Akureyri 2026-2036

Benedikt Sigurðarson skrifar
14. maí 2026 | kl. 06:00

Félagsleg tengsl eru grunnur að velferð

Íunn Eir Gunnarsdóttir skrifar
13. maí 2026 | kl. 15:00

Gott að eldast á Akureyri

Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar
13. maí 2026 | kl. 13:15

Velkominn í Disneyland

Kjartan Benediktsson skrifar
13. maí 2026 | kl. 12:45

Okkar skilaboð til fatlaðra íbúa og aðstandenda

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson skrifa
13. maí 2026 | kl. 12:30

Hreinn bær, fagur bær

Þórhallur Harðarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 12:15