Fara í efni
Umræðan

Velkominn í Disneyland

Eins og sést á meðfylgjandi mynd stendur á skiltinu: „Velkominn í Disneyland.“ Nei, þetta er ekki alvöru skiltið við bæjarmörkin – en miðað við þróunina síðustu ár gæti maður alveg trúað því að þetta væri stefnan. Akureyri er að breytast í leikmynd þar sem þarfir fjárfesta og ferðamanna trompa lífsgæði þeirra sem eiga að heita heima hérna.

Ég veit satt að segja varla hvað ég á að kjósa næstkomandi laugardag. Það virðist enginn flokkur hafa raunverulega sýn fyrir Akureyri lengur. Allir vilja bara sitt eigið Disneyland.

Akureyri var einu sinni hafnarbær, iðnaðarbær og skólabær Norðurlands. Þjónustukjarni fyrir sveitirnar í kring. Samfélag byggt upp af fólki sem vann, skapaði, kenndi, fiskaði og byggði samfélag. Þetta var heimili fólks. Núna virðist allt snúast um að laða að ferðamenn, fjárfesta og skapa rétta ímynd.

Byggð eru „glæsileg“ hús í Innbænum og stefna miðbæjarins er að missa hægt og rólega karakterinn sinn. Milljörðum er dælt í stúkur, glans, gæluverkefni og íþróttamannvirki sem eiga fyrst og fremst að láta bæinn líta vel út út á við. Á meðan hækkar kostnaðurinn fyrir fólkið sem á að búa hér.

Þegar samfélag hættir að byggjast upp fyrir fólkið sem þar býr og fer í staðinn að byggjast upp sem markaðsvara eða upplifun fyrir gesti og fjárfesta, þá byrjar eitthvað að rofna. Eitt sinn höfðum við öflugt kaupfélag og sterk norðlensk fyrirtæki sem héldu samfélaginu gangandi. Nú
hafa fyrirtæki hvert á fætur öðru verið seld, flutt burt eða lögð niður. Fólk talar enn um þegar Linda var seld og síðan lokuð. Í dag eru margir stærstu vinnuveitendurnir orðnir utanaðkomandi fjárfestar, fyrirtæki og sérfræðingar að sunnan. Samfélög lifa ekki á markaðsímynd einu saman. Þau þurfa rætur, sögu, tilgang, menningu og fólk sem á staðinn í raun. Annars endar maður með fallegan sýningarbæ þar sem enginn tilheyrir lengur.

Annars eru götur sennilega sópaðar oftar í Disneylandi en hér.

Kjartan Benediktsson er smiður á Akureyri

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00