Fara í efni
Umræðan

Hótelið opnað sumarið 2027 – Edda hótelstjóri

Hótel verður á flötinni fyrir miðri mynd, steinsnar frá Skógarböðunum sem eru til vinstri. Mynd: Þorgeir Baldursson

Framkvæmdir við 120 herbergja hótel, sem rís við rætur Vaðlaheiðar, eru á ætlun. Hótel Gjá – Hotel Forest Lagoon – verður tekið í notkun sumarið 2027 og þegar hefur verið ráðinn hótelstjóri; Edda Hrund Guðmundsdóttir Skagfield, sem tekur þó ekki til starfa fyrr en á vormánuðum. Hún er nú við stjórnvölinn á Berjaya hótelinu á Akureyri.

Það eru eigendur Skógarbaðanna sem standa að hótelinu, sem rís spölkorn sunnan baðlóðsins. Lónið var stækkað mikið í haust og stækkar enn þegar hótelið verður opnað; mun þá ná alla leið inn í hótelið.

Edda Hrund Guðmundsdóttir Skagfield verður hótelstjóri á Gjá. Hún kynnti sér framkvæmdir á dögunum. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Eigendur Skógarbaðanna segja að vegna mikilla vinsælda baðstaðarins hafi verið ákveðið að stíga enn eitt stóra skrefið í uppbyggingu ferðaþjónustu á Norðurlandi með byggingu hótelsins. Þeir líti reyndar svo á að uppbygging í kjölfar Skógarbaðanna sé rétt að hefjast og framtíð atvinnugreinarinnar á Norðurlandi sé mjög björt.

Edda Hrund hefur lengi starfað við ferðaþjónustu. Hún nam hótelstjórnun og alþjóðlega ferðamálafræði í Sviss og lauk gráðu frá Bournemouth University árið 2007. Hún býr yfir mikilli reynslu í hótelrekstri, mannauðsstjórnun og uppbyggingu í ferðaþjónustu; Edda hefur komið að opnun og uppbyggingu fjölda þekktra staða, þar á meðal Hótel Kríu í Vík, Loft Hostel við Bankastræti og veitingastaðarins Krúsku, auk annarra verkefna.

Teikning af hótel Gjá – Hotel Forest Lagoon – sem rís spölkorn sunnan Skógarbaðanna við rætur Vaðlaheiðar.
Undanfarin ár hefur Edda gegnt stöðu hótelstjóra á Hótel Laxá í Mývatnssveit, starfað sem mannauðsstjóri hjá TDK Foil Iceland og síðast hjá Iceland Hotel Collection by Berjaya. Þar kveðst hún hafa lagt áherslu á gæði, þjónustumenningu og sterka liðsheild og segir að Hótel Gjá muni byggja á sömu hugmyndafræði og Skógarböðin – ró, náttúru, vellíðan og gæðum. „Hótelið mun marka tímamót í ferðaþjónustu svæðisins“, segir Edda.

 

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Nýja hótelið er „hrein norðlensk fjárfesting“ eins og eigendur þess orða það. Fjárfesting í framtíð svæðisins, auknum lífsgæðum fyrir heimafólk og öflugri atvinnusköpun. „Þetta er ekki bara hótel, heldur staður þar sem náttúra, samfélag og ferðaþjónusta mætast – til hagsbóta fyrir bæði gesti og íbúa.“

Mynd: Þorgeir Baldursson

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00