Hlíðarfjall – Kóróna svæðisborgar?
Í aðdraganda kosninga er til siðs að stinga niður penna.
Íþróttamannvirki hafa síðustu ár verið kosningamál og jafnvel loforð hér í bæ. Engu get ég lofað, enda ekki í framboði, en vil hvetja frambjóðendur, hvar í flokki sem þeir standa til að gefa sér tíma til að lesa þar sem hér á eftir kemur.
Hlíðarfjall á sér merkilega sögu, þar stendur eitt af eldri húsum sveitarfélagsins skíðahótelið sem áður var gamli spítali, byggður 1898 en var fluttur árið 1956 og nýttur lengi vel sem hótel eins og nafnið gefur til kynna. Hótelið er enn andlit Hlíðarfjalls, fallegt að utan en löngu úr sér gengið til að sinna öðru hlutverki en sem táknmynd.
Nokkrar atlögur hafa verið gerðar að framtíðarskipulagi svæðisins, en gildandi deiliskipulag er frá árinu 2014, með smávægilegum breytingum. Nýjasta mannvirkið á svæðinu er troðarageymsla, jafnframt liggur fyrir samningur bæjarins við Kambagil ehf um uppsetningu sleðabrautar sem byrjar rétt norðan hótelsins og nær niður undir Hálönd.
Hlíðarfjall hefur margvísleg hlutverk, það er útivistarsvæði, jafnt vetur sem sumar, það er æfingasvæði iðkenda Skíðafélags Akureyrar (SKA) þegar snjóalög leyfa og Hjólreiðafélags Akureyrar (HFA) á sumrin þegar snjó hefur tekið upp. Jafnframt er það einskonar skemmtigarður
nokkrar helgar á ári þegar gestir sækja bæinn heim.
Útivistarsvæðið
Vetraríþróttamiðstöð Íslands var valinn heimavöllur í Hlíðarfjalli árið 1995, ekki að ástæðulausu. Aðstæður voru góðar. En betur má ef duga skal. Bæta þarf innviði s.s. húsakost, lyftur, bílastæði o.fl. Uppbygging orlofsbyggðar í Hálöndum er skýrt merki um að Hlíðarfjall er segull fyrir íbúa utan Eyjafjarðar að sækja svæðið heim.
Fyrir um áratug síðan var Hlíðarfjall að mestu mannlaust á sumrin og haustin, nú er staðan önnur, með uppbyggingu hjólabrauta á svæðinu og sumaropnun Fjarkans. Með frekari uppbyggingu á svæðinu, aukinni opnun, fleiri hjólaleiðum og merkingum gönguleiða liggja tækifæri til að laða enn fleiri gesti á svæðið. Fyrirhuguð uppsetning á sleðabraut mun vafalaust auka fjölda gesta að sumarlagi verulega. Með stígagerð um vestanverðan Glerárdal og hringleið mætti gera Hlíðarfjall að upphafsstað stórkostlegra göngu-, hlaupa- og hjólaleiða.
Æfingasvæðið
Skíðafélag Akureyrar á sinn heimavöll í Hlíðarfjalli. Félagið deilir allri sinni aðstöðu með öðrum gestum svæðisins. Félagið hefur enga sameiginlega félagsaðstöðu, búningsherbergi eða búnaðargeymslu. Vöxtur félagsins kallar á algjöra endurskoðun á æfinga og félagsaðstöðu. Ítrekað hefur komið fyrir að börn á æfingum komist aðeins örfáar ferðir í brekkurnar vegna fjölmennis annara gesta á æfingatíma. Viðskiptavinir skíðaskólans, fá forgang í lyftumannvirki Hlíðarfjalls, þótt æfingar standi yfir. Mér er til efs að slíkt þekkist í öðrum íþróttagreinum hér í bæ. Aðgengi að æfingasvæði brettafólks hefur verið takmarkað síðustu ár. Húsakostur á skíðagöngusvæði er farinn að standa starfinu fyrir þrifum og bæta þarf snjógirðingar. Markviss landmótun og snjóframleiðsla er lykilþáttur til að fjölga æfingadögum skíða-og brettagreina SKA.
Skemmtigarðurinn
Hlíðarfjall er helsta aðdráttarafl Akureyrar að vetrum, og gríðarlega mikilvægur segull fyrir fyrirtæki bæjarins. Svæðið gat lengi vel tekið á móti þeim fjölda sem sótti svæðið heim. Síðustu ár hafa skapast raðir upp í fjall, bílastæðavandræði o.fl. Lyfturkosturinn, sérstaklega á neðri hluta svæðisins annar illa þeim gestafjölda sem sækir heim svæðið.
Framtíðarsýn
Svæðisborgin (vonandi fljótlega) Akureyri þarf að marka skýra stefnu um uppbyggingu Hlíðarfjalls til næstu 25 ára. Margar atlögur að framtíðarskipulagi hafa verið gerðar, en lítið orðið úr. Uppbygging þarf að gerast í áföngum, en mikilvægt er að skipulagið sé heilstætt, með því má spara kostnað til lengri tíma litið.
Gera þarf aðgerðaráætlun til næstu 5 ára um uppbyggingu, byggt á samþykktu framtíðarskipulagi. SKA hefur nú þegar lagt fram tillögur að landmótun, sem ætti að auðvelda fyrstu skrefin fyrir bæjarfélagið. Aðgerðaráætlun þarf svo að endurskoða og uppfæra á 2 ára fresti svo ávallt liggi fyrir hvað til stendur að gera næstu 5 árin, sem og meta árangur.
Greinarhöfundur telur nauðsynlegt að endurskoða núverandi rekstrarform Hlíðarfjalls. Ör stækkun skíðafélagsins kallar á bætta aðstöðu félagsins, aukna aðkomu að skipulagi og rekstri svæðisins. Núverandi fyrirkomulag útilokar nær með öllu aðkomu félagsins að uppbyggingu.
Nærtækt dæmi um vel heppnað rekstarform íþróttamannvirkis, sem bæði þjónar sem æfingasvæði og viðkomustaður gesta er Jaðarsvöllur Golfklúbbs Akureyrar. Þar hefur uppbygging á síðustu árum tekist gríðarlega vel, með aðkomu bæjarfélagsins en jafnframt gríðarlega öflugum sjálfboðaliðum GA. Mikilvægt er að skapa rekstrinum sveigjanleika en jafnframt öfluga innviði. Opnun í nóvember eða köldum mánudagseftirmiðdegi má kannski hafa yfir sér annan brag en á sólríkum sunnudegi í mars.
Andrésar andarleikarnir fögnuðu nýlega 50 ára afmæli. Þeir eru lifandi sönnun þess að skíðaíþróttin er vaxandi og félagsauður SKA gríðarlegur. Gerum betur og verum úti að hreyfa okkur allt árið. Það hressir, bætir og kætir, óháð því hvort stefnt er á ólympíuleika eða bara næla sér í ferskt loft.
Birkir Baldvinsson er foreldri tveggja ungra iðkenda hjá SKA og hefur reynt að gera bæinn betri með brasi tengt íþróttaviðburðum síðustu ár.
Gott að eldast á Akureyri
Velkominn í Disneyland
Okkar skilaboð til fatlaðra íbúa og aðstandenda
Hreinn bær, fagur bær