Þór/KA með stórsigur á FHL – Hulda Ósk með þrennu
Þór/KA vann stórsigur á liði FHL í fjórða leik sínum í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu í gærkvöld. Leikið var í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði og lokatölur 9-0, Þór/KA í vil. Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði þrennu fyrir Þór/KA.
FHL hefur teflt fram mjög ungu liði í keppninni til þessa, eingöngu heimastelpum og engum erlendum leikmönnum. Þór/KA var reyndar ekki með fullskipað lið í gær, 16 leikmenn í hóp og nokkrar breytingar frá síðasta leik. Þrjár eru á æfingum með U19 landsliðshópnum auk þess sem fleiri vantaði í hópinn. Það gaf ungum leikmönnum tækifæri, tvær spiluðu sinn fyrsta byrjunarliðsleik með meistaraflokki Þórs/KA í gær, þær Aníta Ingvarsdóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir. Aníta notaði tækifærið og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Þór/KA og átti stoðsendingu að auki. Karen Hulda leysti Örnu Sif Ásgrímsdóttur af í miðvarðarstöðunni og gerði það vel. Þá skoraði Ísey Ragnarsdóttir einnig sitt fyrsta mark með meistaraflokki Þórs/KA.
Það tók leikmenn Þórs/KA um 19 mínútur að koma inn fyrsta markinu. Margrét Árnadóttir fékk þá sendingu fyrir markið frá systur sinni, Amalíu, og skoraði af öryggi. Margrét var í fyrsta skipti í byrjunarliði hjá Þór/KA síðan í byrjun september í fyrra. Hún kom inn á sem varamaður í síðasta leik og spilaði fyrri hálfleikinn í gær.
Eftir mark Margrétar var aldrei spurning hvert stefndi. Hulda Björg Hannesdóttir bætti við öðru markinu fimm mínútum síðar eftir hornspyrnu, og aðeins þremur mínútum eftir mark Huldu Bjargar skoraði Bríet Fjóla Bjarnadóttir þriðja mark Þórs/KA og sitt fjórða mark í mótinu. Þá var komið að Huldu Ósk. Hún skoraði á 32. mínútu og aftur á lokamínútu fyrri hálfleiksins. Þór/KA með 5-0 forystu eftir fyrri hálfleikinn.
Hulda Ósk hélt svo uppteknum hætti og kláraði þrennuna eftir átta mínútna leik í seinni hálfleiknum. Eftir þrennuna hjá Huldu Ósk var um 20 mínútna bið eftir næsta marki. Ísey Ragnarsdóttir kom inn af varamannabekknum á 73. mínútu og aðeins mínútu síðar hafði hún skorað sjöunda mark liðsins, hennar fyrsta með meistaraflokki Þórs/KA. Amalía Árnadóttir skoraði áttunda markið þegar um sjö mínútur voru til leiksloka og Aníta Ingvarsdóttir lokaði dæminu með marki þremur mínútum síðar, hennar fyrsta með meistaraflokki Þórs/KA.

Ísey Ragnarsdóttir til vinstri í leik með Þór/KA2 í Kjarnafæðimótinu og Aníta Ingvarsdóttir til hægri í sigurleik liðsins gegn Grindavík/Njarðavík í Lengjubikarnum fyrr í mánuðinum. Ísey kom inn af varamannabekknum í gær og skoraði sitt fyrsta meistaraflokksmark um mínútu síðar. Aníta var í fyrsta skipti í byrjunarliði hjá Þór/KA og nýtti tækifærið vel, skoraði níunda mark liðsisn og átti stoðsendingu í því áttunda. Myndir: Ármann Hinrik.
Þór/KA er sem stendur í 2. sæti riðils 1 með sex stig eftir fyrstu fjóru leikina. Stjarnan er á toppnum með níu stig, einnig eftir fjóra leiki, en Grindavík/Njarðvík og Þróttur eru jöfn Þór/KA að stigum, með lakari markatölu. Þessi lið eiga svo reyndar leik til góða á Þór/KA.
Skólastarf Akureyrarbæjar styrkt með farteymi sérfræðinga
Gervigreind – lykillinn að hagræðingu sveitarfélaga
Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur
Íþróttahús á félagssvæði Þórs