Fara í efni
Umræðan

Bjarni Guðjón heim í Þór - lánaður frá FH

Mynd af vef Þórs

Knattspyrnudeild Þórs og knattspyrnudeild FH hafa komist að samkomulagi um að Bjarni Guðjón Brynjólfsson snúi aftur í Þór á lánssamningi frá Hafnafjarðarliðinu.

Þetta kemur fram á vef Þórs í dag. Þar segir:

Bjarni er þar með að snúa aftur heim í Þorpið eftir að hafa verið seldur frá Þór til Vals haustið 2023. Bjarni staldraði stutt við hjá Val og gekk til liðs við FH um mitt sumar 2024. Þar hefur Bjarni leikið 28 leiki með FH í efstu deild og skorað tvö mörk.

Bjarni fagnaði 22 ára afmæli sínu í gær og nýtti afmælisdaginn í að ferðast til móts við Þórsliðið sem dvelur nú við æfingar á Marbella á Spáni. Hann hefur leikið 68 leiki fyrir Þór í deild og bikar og skorað í þeim 17 mörk en alls hefur Bjarni leikið 97 leiki í meistaraflokki. Þá hefur hann leikið 14 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað eitt mark. Bjarni var kjörinn íþróttamaður Þórs 2022.

Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag

Arna Rut Gunnarsdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 18:00

Skólastarf Akureyrarbæjar styrkt með farteymi sérfræðinga

Heimir Örn Árnason skrifar
26. febrúar 2026 | kl. 11:30

Gervigreind – lykillinn að hagræðingu sveitarfélaga

Stefán Þór Stefánsson skrifar
26. febrúar 2026 | kl. 10:10

Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 21:00

Íþróttahús á félagssvæði Þórs

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Hulda Elma Eysteinsdóttir skrifa
19. febrúar 2026 | kl. 18:00

Nýja blokkahverfið á tjaldsvæðisreitnum – Afleitt skipulag

Jón Hjaltason skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 11:30