Fara í efni
Umræðan

Ívar Örn seldur frá KA til Breiðabliks

Ívar Örn Árnason og Fjóla Sigurðardóttir með soninn Bjarka Bent í Boganum í gær, þar sem þau fylgdust með leik KA og Víkings í Lengjubikarkeppninni. Mynd: Ármann Hinrik
Knattspyrnudeild KA hefur selt Ívar Örn Árnason til Breiðabliks í Kópavogi. Þetta var tilkynnt á samfélagsmiðlum KA rétt í þessu.
 
Ívar leikur sem miðvörður – í hjarta varnarinnar – og er fyrirliði liðsins. Hann lék alls 181 keppnisleik fyrir uppeldisfélagið, að því er segir í tilkynningunni; á Íslandsmóti, í bikarkeppni, Evrópukeppni og meistarakeppni KSÍ.  „Hann var í liði KA sem vann sigur í Inkassodeildinni sumarið 2016 sem tryggði félaginu sæti í deild þeirra bestu þar sem liðið hefur leikið allar götur síðan auk þess að vera fyrirliði KA sem varð Bikarmeistari 2024. Þá var faðir hans, Árni Freysteinsson, leikmaður í Íslandsmeistaraliði KA sumarið 1989,“ segir í tilkynningu KA.
 


Mynd sem birtist á heimasíðu KA í dag.

Símafrí sem virkar í Akureyarbæ

Heimir Örn Árnason skrifar
16. apríl 2026 | kl. 13:00

Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara

Mikael Snær Gíslason skrifar
16. apríl 2026 | kl. 12:45

Öryggi í fyrirrúmi - sameinumst öll um nýja Slökkvistöð á Akureyri

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 17:00

Er Loftbrúin næst?

Sverre Jakobsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 16:30

Gleymda forvörnin

Stefán Oddur Hrafnsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 12:00

Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum!

María Pálsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 11:11