Fara í efni
Umræðan

Linder fór úr axlarlið – óvíst með bikarhelgina

Morten Boe Linder, fyrir miðri mynd, fór úr axlarlið gegn Val. Óljóst er hvort hann verður orðinn leikfær þegar KA tekur þátt í lokaspretti bikarkeppninnar í næstu viku. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Morten Boe Linder, leikmaður handboltaliðs KA, fór úr axlarlið í leiknum gegn Val í Reykjavík um síðustu helgi. Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, staðfestir þetta við handkastið. Andri segir Norðmanninn kominn í meðferð vegna meiðslanna, KA-menn voni það besta en óvíst sé hvort hann geti tekið þátt í bikarúrslitahelginni. „Næstu dagar munu að skera úr um hversu lengi hann verður frá,“ segir Andri.

Það var vinstri öxlin sem fór úr lið – „skothöndin“, þar sem leikmaðurinn er örvhentur.

Næsti leikur KA er á sunnudaginn kemur þegar ÍBV kemur í heimsókn. Sú viðureign er í 19. umferð Olísdeildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins, en á fimmtudegi í næstu viku, 26. febrúar, eru undanúrslit bikarkeppninnar (Powerade bikarsins) á dagskrá. KA mætir þá ÍR í íþróttahúsi Hauka í Hafnarfirði og sigurliðið það kvöld mætir FH eða Haukum í úrslitaleik keppninnar laugardaginn 28. febrúar á sama stað.

Símafrí sem virkar í Akureyarbæ

Heimir Örn Árnason skrifar
16. apríl 2026 | kl. 13:00

Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara

Mikael Snær Gíslason skrifar
16. apríl 2026 | kl. 12:45

Öryggi í fyrirrúmi - sameinumst öll um nýja Slökkvistöð á Akureyri

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 17:00

Er Loftbrúin næst?

Sverre Jakobsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 16:30

Gleymda forvörnin

Stefán Oddur Hrafnsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 12:00

Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum!

María Pálsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 11:11